Í Kappahl verður sérstök dagskrá frá kl. 18 þar sem ýmis fyrirtæki af svæðinu verða á staðnum að kynna vörur sínar og starfsemi og þar á meðal eru Daley kerti, Endurlífga jewellery, Lena verslun og Krabbameinsfélag Árnessýslu auk þess sem MS og Kjötbúrið verða með dýrindis mat til að smakka.
„Við hvetjum Selfyssinga til að byrja jólagjafainnkaupin snemma og versla í heimabyggð. Við tökum vel á móti ykkur á Bleiku kvöldi þann 8. október!“ segir Jóna Alla Axelsdóttir, starfsmaður Kappahl, fyrir hönd verslananna við Larsenstræti.

