1.7 C
Selfoss
Home Fréttir KOTTOS – með kraft og tilfinningu

KOTTOS – með kraft og tilfinningu

0
KOTTOS – með kraft og tilfinningu
Kammertónlistarkvartettinn KOTTOS verður með tónleika í Skálholtskirkju 26. september.

Þann 26. september nk. verður unnt að hlusta á hinn margrómaða danska kammertónlistarkvartett KOTTOS í Skálholtskirkju. Tónleikarnir í Skálholtskirkju verða þeir síðustu í þessari fyrstu Íslandsferð þeirra undir heitinu KOTTOS – með kraft og tilfinningu.

Hinir fjóru margverðlaunuðu tónlistarmenn í KOTTOS sameinuðust um ástríðuna fyrir hinu fullkomna, því sem er öðruvísi, þjóðlagatónlistinni og tengingunni þar á milli. Með áhrifamikilli blöndu af norrænum tónlistaráhrifum sem eru fléttuð saman með áhrifum frá grískri tónlist, nær kvartettinn að skapa einstæða tónlist sem geislar af hlýju, snilld og krafti. Tónlist KOTTOS ber ekki keim af hefðbundinni þjóðlagatónlist. Helst má skilgreina hana sem tónlist frá landi sem hefur aldrei verið til.

Tónleikarnir í Skálholtskirkju hefjast kl. 20:00 og unnt verður að greiða fyrir aðgöngumiða á staðnum með greiðslukorti.