2.3 C
Selfoss
Home Fréttir Sumarbústaður og bíll brunnu í Tungunum

Sumarbústaður og bíll brunnu í Tungunum

0
Sumarbústaður og bíll brunnu í Tungunum

Um klukkan hálf fimm í gær barst tilkynning til lögreglunnar á Suðurlandi um að eldur logaði í sumarbústað í Tungunum. Samkvæmt tilkynningunni logaði glatt í bústaðnum auk þess sem eldurinn hafði borist í bifreið sem stóð þar við. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang var bústaðurinn alelda og litlu hægt að bjarga. Brann bústaðurinn til kaldra kola ásamt bifreiðinni sem er ónýt eftir. Enginn var í eða við bústaðinn þegar eldurinn kviknaði. Rannsókn lögreglu á vettvangi er lokið en eldsupptök eru enn óljós.