7.3 C
Selfoss
Home Fréttir Kærðir fyrir akstur utan vega

Kærðir fyrir akstur utan vega

0
Kærðir fyrir akstur utan vega

Þann 21. júní sl. var erlendur ferðamaður kærður fyrir að aka utan vegar við Kjalveg milli Hveradala og Kerlingafjalla. Ferðamaðurinn festi bifreið sína og þurfti aðstoð bílaleigu sinnar við að leysa úr sínum málum. Sektargreiðslan var upp á 70 þúsund krónur. Kostnað vegna björgunraðgerða er ekki vitað um.

Annar erlendur ferðamaður var kærður fyrir akstur utan vega við Jökulsárlón þann 20. júní. Sá lauk máli sínu með greiðslu sektar að upphæð 50.000 krónur.

Þessa dagana eru lögreglumenn við eftirlit á hálendinu á sérbúnum bíl til fjallferða. Lögð verður áhersla á að sinna hálendiseftirliti í sumar enda hefur það sýnt sig að slíkt hefur veruleg áhrif á hegðun vegfarenda á hálendinu.

Alls voru 58 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt á Suðurlandi í liðinni viku. Þá voru skráningarnúmer tekin af fjórum ökutækjum sem reyndust vera ótryggð í umferðinni. Þrír voru kærðir fyrir að aka undir áhrifum áfengis og af þeim var einn einnig grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna. Sá hafði, þann 23. júní sl. ekið út af vegi á leið niður Kambana án þess þó að slys yrðu á fólki. Annar ökumaður var stöðvaður í nágreni Hafnar í Hornarfirði þann 18. júní s.l. grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Fjórum sinnum var tilkynnt um að ekið hafi verið á sauðfénað á þjóðvegi 1. Einu sinni í nágrenni Kirkjubæjarklausturs og þrisvar í nágrenni Hafnar. Þá bárust tilkynningar um lausar kindur við Landvegamót og laus hross bæði á Selfossi og við Hvolsvöll.

Lögreglumenn í eftirliti með stórum bifreiðum höfðu, þann 19. júní afskipti af vörubifreiðastjóra þar sem hluti farms bifreiðarinnar féll af palli hennar og í vegkant Suðurlandsvegar. Mikilvægt er að ganga tryggilega frá farmi enda getur hann valdið umtalsverðri hættu við það að falla af bíl í umferð eins og gefur að skilja.

Þann 19. júní tilkynnti ökumaður fólksbifreiðar um að hann hafi ekið á dreng á reiðhjóli á gangbraut við Eyrarveg á Selfossi. Drengurinn slapp ómeiddur að sögn en reiðhjól hans var ónýtt eftir.

Úr dagbók lögreglunnar á Suðurlandi.