5.7 C
Selfoss

Kjúklingaborgari

Vinsælast

Matgæðingur vikunnar er Sigurður Örn Eiðsson.

Takk kærlega, Kristófer Logi, fyrir að skora á mig og langar mig að taka það fram að það er Sigurður Ernir en ekki Sigurður Örn. Ég er alveg búinn að vera með svaka valkvíða yfir hvað ég átti að velja en að lokum valdi ég kjúklingaborgarauppskrift sem systir mín, Eva Rún Eiðsdóttir, eldar oft.

Hráefni:
-Kjúklingabringur (ca. fjórar)
-Egg (ca. 2-3)
-Mulið kornflex (ca. 2-3 bollar)
-Salt, pipar, paprikukrydd, hvítlaukskrydd
-Ef þið viljið hafa sterkt: cajun og chili-krydd
-Sósa að ykkar vali
-Hamborgarabrauð
Það sem mér finnst gott að gera er að skera kjúklinginn í tvennt eftir endilöngu svo úr verði tvö þunn stykki. Ég krydda hann síðan með kryddunum hér fyrir ofan. Á meðan kjúklingurinn dregur í sig kryddið græja ég eggin og kornflexið. Ég hræri 2-3 egg á djúpum diski og myl niður 2-3 bolla af kornflexi á annan disk. Síðan dýfi ég skornu kjúklingabringunum fyrst í eggin og síðan í mulda kornflexið. Þeim er svo raðað á ofnskúffu sem er með bökunarpappír í botninum.

Þegar allar bringurnar eru tilbúnar læt ég þær í ofn sem er 180 °C heitur í um það bil 17 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður alveg í gegn. Síðan þegar allt er tilbúið set ég sósu að mínu vali, sem er vanalega Franks Red Hot buffalo eða BBQ-sósa, ofan á brauð og raða síðan saman borgaranum. Hver og einn setur svo það sem honum finnst gott á borgarann. Mér finnst t.d. gott að hafa kál og jalapeno.

Til að hafa þetta extra sveitt er gott að opna einn svartan dorra (svart Doritos) og glas af pepsi (upprunalega bragðið) með klökum og njóta.


En þá ætla ég að rétta honum Birgi Þór Þórmundssyni keflið og veit ég að í honum (eða mömmu hans) búa einhverjir svaka gómsætir réttir.

Nýjar fréttir