Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Ölfuss fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun 2028–2030 var samþykkt í bæjarstjórn í gætkvöldi. Áætlunin gerir ráð fyrir áframhaldandi fólksfjölgun, miklum framkvæmdum og jákvæðri rekstrarniðurstöðu.
Helstu niðurstöður eru þær að rekstrartekjur samstæðu A- og B-hluta eru áætlaðar 6.678 milljónir króna og rekstrargjöld 5.304 milljónir. Rekstrarniðurstaðan árið 2027 er áætluð jákvæð um 823 milljónir króna eftir afskriftir og fjármagnsliði. Framlegð fyrir afskriftir og fjármagnsliði er áætluð 1.374 milljónir. A-hluti er áætlaður með 387 milljóna króna afgangi og B-hluti með 435 milljóna króna afgangi. Öllum rekstrarafgangi ársins verður varið til áframhaldandi uppbyggingar innviða.
Árið 2027 er gert ráð fyrir fjárfestingu upp á 1.895 milljónir króna. Meðal stærstu verkefna eru stækkun grunnskóla, félagsaðstaða eldri borgara og gatnagerð. Einnig er fjárfest í höfn, vatns- og fráveitu og áfram unnið að íþróttaaðstöðu, þar á meðal undirbúningi knattspyrnuhúss. Á fjögurra ára tímabili er gert ráð fyrir samtals um 6,3 milljörðum króna í fjárfestingar.
Áætlunin sendir skýr skilaboð um áframhaldandi stefnu um að létta álögur á íbúum. Leikskóli verður áfram gjaldfrjáls og öllum öðrum gjöldum stillt mjög í hóf. Þá er áfram haldið að lækka álagningahlutfall fasteignaskatts sem hefur nú lækkað um 50% á níu árum og er nú það lægsta í sögu Ölfuss. Sérstök áhersla er lögð á að létta byrðum af fjölskyldum með börn. Samkvæmt samanburðargögnum er nettó árskostnaður viðmiðunarfjölskyldu með tvö börn vegna leikskóla og frístundar, að frístundastyrkjum meðtöldum, tæpar 198 þúsund krónur, eða 65% undir miðgildi samanburðarins. Ölfus er því sannarlega barnvænt samfélag, í orði sem á borði.
Samkvæmt forsendum áætlunarinnar verða íbúar Ölfuss um 3.297 á næsta ári og fjölgar í um 3.817 árið 2030. Það er tæplega 22% fjölgun frá útkomuspá ársins 2026.
Stærsti hluti útgjalda Aðalsjóðs rennur til fræðslu- og uppeldismála, félagsþjónustu og æskulýðs- og íþróttamála. Þessi forgangsröðun sýnir hvar ábyrgð sveitarfélagsins liggur, að tryggja góða þjónustu fyrir börn og fjölskyldur, styðja við fólk sem þarf á félagsþjónustu að halda og mæta þörfum samfélags sem stækkar hratt. Þjónustukönnun Gallup 2025 styður þá mynd að íbúar meti þjónustuna vel; Ölfus var í efsta sæti allra sveitarfélaga í níu af tólf þáttum. Hvergi á Íslandi er ánægjan meiri með þjónustu sveitarfélagsins.
Fjárfestingar ársins 2027 verða fjármagnaðar með 1.342 milljónum króna í veltufé frá rekstri, 880 milljónum í nýjum langtímalánum og öðrum fjármögnunarliðum. Á sama tíma verða greiddar niður 333 milljónir af langtímalánum. Skuldir við lánastofnanir eru áætlaðar 2.967 milljónir í árslok 2027. Reiknað skuldaviðmið verður 48,8%, langt undir lögbundnu hámarki sem er 150%. Þetta sýnir að sveitarfélagið hefur svigrúm til að ráðast í mikilvæga uppbyggingu.
Áætlunin fyrir Ölfus er áætlun fyrir vaxandi samfélag, með áherslu á velferð fjölskyldna. Við viljum halda áfram að bæta þjónustu og styrkja innviði án þess að missa sjónar á því að rekstur sveitarfélagsins verður að vera sjálfbær. Með jákvæðri rekstrarniðurstöðu, hóflegu skuldaviðmiði og skýrri forgangsröðun getum við ráðist í nauðsynlegar framkvæmdir og skapað áfram góð skilyrði fyrir íbúa og atvinnulíf. Það er sú ábyrgð sem þessi fjárhagsáætlun á að endurspegla.
Elliði Vignisson
Bæjarstjóri Ölfus

