5.7 C
Selfoss

Opið hús hjá virknimiðstöðinni Strók á Selfossi 2. desember

Vinsælast

Miðvikudaginn 2. desember frá kl. 18:00 til 20:00 býður virknimiðstöðin Strókur til opins húss að Skólavöllum 1 á Selfossi. Allir eru hjartanlega velkomnir að líta við í skammdeginu, kynnast starfseminni og eiga notalega stund saman.

Strókur er virkni- og endurhæfingarúrræði á Suðurlandi fyrir einstaklinga sem glíma við geðraskanir, félagslega einangrun eða eru utan vinnumarkaðar.

Í Strók skiptir virknin í húsinu sköpum fyrir daglegt líf og vellíðan. Starfið byggir á því að allir koma inn á jafningjagrundvelli og taka virkan þátt í starfinu á sínum forsendum. Með því að vinna saman að fjölbreyttum verkefnum, deila reynslu og styðja hvert annað í bata myndast dýrmætt tengslanet og öruggur vettvangur til valdeflingar.

Á opnu húsi verður handverks- og iðjuvarningur sem félagar hafa unnið að í húsinu til sölu má þar nefna; málverk, jólakort, litaðar myndir, teiknaðar myndir, prjónavörur, skartgripir, leðurvörur, málaðar jólamyndir og fleira fallegt. Það verður heitt kaffi á könnunni, piparkökur og konfekt í boði fyrir gesti. Gestir eru hvattir til að kíkja við, kynnast starfinu og njóta stundarinnar ásamt því að styðja við bakið á Strók með því að kaupa varning.

Fjóla Einarsdóttir forstöðukona Stróks

 

Nýjar fréttir

Fundur Veiðifélags Árnesinga

Kjúklingaborgari

Í minningu pabba