-7.3 C
Selfoss

Hulduheimar fyrstir leikskóla í Árborg til að hljóta ART-vottun

Vinsælast

Leikskólinn Hulduheimar á Selfossi hefur fyrstur leikskóla í Árborg hlotið ART-vottun frá ART-teymi Suðurlands. Vottunin er mikilvæg viðurkenning á því faglega starfi sem unnið hefur verið innan leikskólans undanfarin ár, en ART hefur verið hluti af starfsemi Hulduheima í um 16 ár.

Fulltrúar ART-teymis Suðurlands heimsóttu Hulduheima á dögunum og afhentu Kristrúnu leikskólastjóra ART-vottunina við hátíðlega athöfn. Tilefnið var sérstaklega ánægjulegt þar sem heimsóknina bar einnig upp á 20 ára afmæli leikskólans. Af því tilefni færðu fulltrúar teymisins leikskólanum innrammaða viðurkenningu og nýja ART-möppu með uppfærðu kennsluefni.

Þjálfun í félagsfærni, sjálfstjórn og siðferði

ART (Aggression Replacement Training) er þjálfunaraðferð sem miðar að því að efla félagsfærni, sjálfstjórn og siðferðisþroska barna. Aðferðin er nýtt í leik- og grunnskólum víða um land og byggir á skipulagðri þjálfun þar sem börn læra meðal annars að takast á við tilfinningar, leysa ágreining og eiga jákvæð samskipti við aðra.

ART hefur verið fastur liður í starfi Hulduheima í um 16 ár og því býr starfsfólk leikskólans yfir mikilli reynslu og þekkingu á aðferðinni.

Vottunin byggir á skýrum gæðaviðmiðum

Til þess að leikskóli geti hlotið ART-vottun þarf hann að uppfylla ákveðin fagleg skilyrði. Meðal annars er gerð krafa um að nægilega margir starfsmenn hafi lokið ART-réttindanámskeiði og að öll börn á elsta ári leikskólans taki þátt í 12 vikna ART-þjálfun.

Þá þarf allt starfsfólk að þekkja hugmyndafræði ART og þau verkfæri sem aðferðin byggir á. Einnig er lögð áhersla á að ART sé sýnilegt í námskrá og daglegu starfi leikskólans og að þekkingu starfsfólks sé viðhaldið með markvissri símenntun.

Með vottun Hulduheima er markaður tímamótaáfangi í ART-starfi leikskólans og jafnframt vakin athygli á því mikilvæga starfi sem unnið er á Suðurlandi við að efla félagsfærni og sjálfstjórn barna.

ART-teymi Suðurlands óskaði öllu starfsfólki Hulduheima innilega til hamingju með vottunina og 20 ára afmæli leikskólans og þakkaði fyrir gott samstarf í gegnum árin.

Nýjar fréttir