Þórunn Hafdís Stefánsdóttir bar sigur úr býtum á Söngkeppni NFSU sem fór fram í Iðu sl. miðvikudag. Þórunn sigraði með laginu „Ég veit þú kemur“ með hljómsveitinni Trúbrot. Þórunn hefur því tryggt sér sæti í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fer fram næsta vor og keppir hún fyrir hönd FSu.
Alls tóku tólf atriði þátt í keppninni með mikilli prýði. Í öðru sæti varð Bryndís Embla Einarsdóttir og Arnar Logi Hafsteinsson í því þriðja. Einnig voru veitt verðlaun fyrir skemmtilegasta atriðið en þau hlaut Heimir Karl Rafnsson.



Líkt og í fyrra lék hljómsveitin Koppafeiti undir hjá öllum keppendum. Þétt var setið í Iðu og stemningin var frábær. Kvöldið hófst á stuttmynd þar sem hver leiksigurinn á fætur öðrum leit dagsins ljós. Manúela Maggý flutti sigurlagið í fyrra og hljómsveitin Bíddu flutti nokkur lög á meðan dómarar réðu ráðum sínum. Það var kvikmyndaþema í ár og báru skreytingar þess glöggt merki.


