5.8 C
Selfoss

2.000 tonna brúargólf dregið yfir Ölfusá

Vinsælast

Mikilvægur áfangi í byggingu nýrrar Ölfusárbrúar nálgast en á næstu dögum hefst flutningur brúargólfsins yfir ána. Mannvirkið er 330 metra langt og vegur um 2.000 tonn. Áætlað er að verkið taki átta til tólf daga.

Undirbúningur hefur staðið yfir undanfarið og meðal annars hefur verið unnið að því að ljúka samsetningu stálgrindarinnar. Einnig hafa lagnir fyrir heitt og kalt vatn, háspennu og fjarskipti verið settar í brúargólfið.

Við flutninginn verður brúargólfið dregið frá austurbakka árinnar yfir á vesturbakkann með aðstoð vökvadrifinna tjakka. Þeir færa mannvirkið áfram í hálfs metra skrefum eftir sérstökum dráttarlegum. Við hagstæðar aðstæður er gert ráð fyrir að hægt verði að færa brúargólfið um tíu metra á klukkustund.

Sérstakur stuðningsbúnaður verður notaður til að halda uppi fremri enda brúargólfsins meðan á færslunni stendur. Bráðabirgðamastur hefur verið sett upp ofan á brúargólfinu og stálkaplar frá mastrinu sjá um að styðja við það.

Framkvæmdin krefst nákvæmrar samhæfingar og öryggisráðstafana. Samráð hefur verið haft við viðbragðsaðila og verður framkvæmdasvæðið lokað óviðkomandi á meðan verkið stendur yfir.

Nýjar fréttir