2.3 C
Selfoss

Kennsla og deildarstjórn á mið- og elstastigi við Þjórsárskóla

0
Kennsla og deildarstjórn á mið- og elstastigi við Þjórsárskóla
  • Hlutastarf
  • Anywhere

Kennsla og deildarstjórn á mið- og elstastigi við Þjórsárskóla

Auglýst er eftir kennarar á unglingastigi með deildarstjórn í 80-100% starf. Miðað er við ca 60-70% kennslu á móti deildarstjórn. Sérstaklega er leitað eftir kennara sem er vanur að kenna á þessum stigum. Þjórsárskóli er heildstæður skóli með um 65-70 nemendur í 1.-10. bekk. Mikil áhersla er á útinám og að þróa skólastarf sem að kemur til móts við nemendur með einstaklingsbundnum hætti. Skólinn er staðsettur í Árnesi um 30 mínútur frá Selfossi.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Áhugi á að starfa með börnum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Áhugi á skólaþróun.
  • Faglegur metnaður.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Reynsla af teymisvinnu er mikilvæg.
  • Reynsla af deildarstjórn er kostur.
  • Mjög góð íslenskukunnátta.

Kennsluskylda er sveigjanleg og umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við skólastjóra.

Við skólann er mikil útikennsla og áhersla á ferðir og ferðalög. Mikilvægt er að umsækjendur séu tilbúnir til að taka þátt í slíku starfi og best ef að viðkomandi hefur mikinn áhuga á slíku.  Við skólann starfar metnaðarfullur mannauður og viljum við bæta við þann góða hóp. Mikilvægt er að umsækjendur séu jákvæðir og góðir í samskiptum.  Fólk, óháð kyni, er hvatt til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Finnbogason, skólastjóri, sími 895 2409.

Skriflegar umsóknir ásamt ferilskrá, prófskírteinum og upplýsingum um fyrri störf sendist í tölvupósti á gudmundur@thjorsarskoli.is.

 

Umsóknarfrestur er til 26. október 2026.

To apply for this job email your details to gudmundur@thjorsarskoli.is