Sunnudaginn 4. október lögðu nemendur í Berlínar- og Parísaráföngum Menntaskólans að Laugarvatni af stað í spennandi námsferðir til Þýskalands og Frakklands.
Nemendurnir eru á þriðja ári og hafa lært þýsku og frönsku hvor í sínum áfanganum undanfarin tvö ár. Loksins fengu þau tækifæri til að spreyta sig á tungumálunum í stórborgunum Berlín og París.
Ferðirnar gáfu nemendum ekki aðeins tækifæri til að nýta tungumálakunnáttu sína heldur einnig til að kynnast mannlífi, menningu og sögu borganna.
Í Berlínarferðinni var aðaláherslan lögð á sögu Berlínarmúrsins og atburði heimsstyrjaldanna tveggja. Nemendur fræddust um sögu múrsins og skoðuðu þá hluta sem enn standa. Með því að sjá með eigin augum þá staði sem bera enn merki þeirra sögulegu atburða sem hafa mótað borgina fengu þau tækifæri til að kynnast sögunni enn betur. Nemendur upplifðu borgina frá ólíkum sjónarhornum, meðal annars í bátsiglingu, úr sjónvarpsturninum og í neðanjarðarlestunum.

Parísarferðin einkenndist hins vegar af mikilli list, menningu og stórbrotnum kennileitum borgarinnar. Nemendur heimsóttu Louvre-safnið, þar sem finna má mörg af þekktustu listaverkum heims, og skoðuðu hina sögufrægu Notre-Dame-dómkirkju. Eiffelturninn gnæfði yfir þeim hvert sem leið þeirra lá, ekki síst í rómantískri kvöldsiglingu þar sem hann ljómaði í myrkrinu. Í París gafst nemendum tækifæri til að hitta Íslending sem hefur búið þar og heyra af reynslu hans af lífinu í frönsku höfuðborginni. Ferðin veitti þeim því ekki aðeins innsýn í franska list og menningu heldur einnig í daglegt líf borgarinnar.
Nú tekur við lokahóf áfanganna og nemendur eru heldur betur reynslunni ríkari eftir vel heppnaðar námsferðir.
Metta Malín Bridde, ritnefndarformaður Stjórn Mímis


