Fimleikadeild Selfoss á átta fulltrúa í landsliðum Íslands sem keppa á Evrópumótinu í hópfimleikum í Finnlandi nú í vikunni. Mótið hefst á morgun, 14. október og lýkur laugardaginn 17. október, en úrslit mótsins eru á föstudag og laugardag.
Í stúlknaliðinu keppa Kristín María Kristjánsdóttir og Elva Lillian Sverrisdóttir. Í drengjaliðinu eru Eiður Hilmar Sigmundsson, Birgir Árni Sigmundsson og Hinrik Jarl Aronsson. Victoria Ann Vokes, Silvia Rós Nokkala Valdimarsdóttir og Elsa Karen Sigmundsdóttir keppa með kvennalandsliðinu.


Selfoss á einnig fulltrúa í þjálfarateymi landsliðanna. Heiðrún Ósk Sævarsdóttir, þjálfari hjá Fimleikadeild Selfoss, er þjálfari drengjalandsliðsins á Evrópumótinu.
Hægt er að horfa á keppnina í beinni hér https://www.gymtv.online/en. Úrslitin í fullorðinsflokki sem fram á laugardaginn munu einnig vera sýnd á Rúv.


