8.4 C
Selfoss

Styrktarkvöld haldið í Hvolnum fyrir litlu hetjuna

Vinsælast

Styrktarkvöldið, Saman fyrir litlu hetjuna, verður haldið í Hvolnum á Hvolsvelli fimmtudaginn 15. október til styrktar Jóni Þórðarsyni, Rikku Sigríksdóttur og fjölskyldu þeirra.

Þann 20. apríl eignuðust Jón og Rikka litla dóttur eftir aðeins 24 vikna og 4 daga meðgöngu. Hún vó aðeins 653 grömm við fæðingu og hefur þurft að berjast af ótrúlegum krafti frá fyrsta degi.
Fjölskyldan hefur þurft að dvelja í Svíþjóð vegna læknismeðferðar litlu stúlkunnar, meðal annars vegna opinnar fósturæðar (PDA). Þau eiga saman fimm börn og þetta hefur því verið gríðarlega krefjandi tímabil fyrir alla fjölskylduna.

Ágústa Óskarsdóttir er aðalskipuleggjandi styrktarkvöldsins. Hún segir viðbrögð fólks og fyrirtækja hafa verið einstaklega góð.

„Ég hef haldið utan um skipulagið og undirbúninginn, en á sama tíma hafa ótrúlega margir lagt hönd á plóg og hjálpað til með einum eða öðrum hætti. Það hefur verið alveg ómetanlegt að finna hvað fólk er tilbúið að standa saman þegar á reynir,“ segir hún í samtali við Dagskrána.

Fjölbreytt dagskrá verður í boði á styrktarkvöldinu. Veislustjóri er Ívar Daníels og meðal þeirra sem fram koma eru Geir Ólafs, Ágúst Brynjar,  Hreimur og Árni og fleiri geggjaðir listamenn. Þar að auki verður lukkuleikur í boði með glæsilegum vinningum. Einn lukkumiði fylgir hverjum aðgöngumiða og hægt verður að kaupa aukamiða fyrir þá sem vilja auka lukkulíkurnar. Allur ágóði kvöldsins rennur til fjölskyldunnar.

Ágústa segir undirbúning kvöldsins hafa gengið ótrúlega vel.
„Það sem hefur komið mér mest á óvart er hvað fólk og fyrirtæki hafa tekið ótrúlega vel í þetta. Listafólk hefur verið tilbúið að gefa vinnu sína, hljóðmaður, og fyrirtæki hafa styrkt okkur með vinningum og ýmiss konar aðstoð og einstaklingar hafa boðið fram hjálp. Það hefur eiginlega verið sturlað að sjá hvað ein hugmynd getur orðið stór þegar svona margir ákveða að leggjast á eitt.“

Hvað vonist þið til að fá út úr loknu styrktarkvöldi?
„Stærsta vonin er auðvitað að við náum að safna góðri upphæð fyrir Jón, Rikku og fjölskylduna þeirra og getum þannig létt aðeins undir með þeim. Mér finnst þetta líka snúast um meira en bara fjárhæðina sem safnast. Mig langar að þau finni hversu margir standa með þeim og hugsa til þeirra. Að þau finni að þau séu ekki ein í þessu. Ef við getum í lok kvöldsins horft yfir salinn og séð fullt hús af fólki sem kom saman til þess að styðja þessa fallegu fjölskyldu þá hefur mínu markmiði verið náð,” segir Ágústa að lokum.

Forsala miða á styrktarkvöldið, Saman fyrir litlu hetjuna, fer fram 13. og 14. október í Hvolnum-Pálstofu frá kl. 16-20 báða daga.

Fyrir þá sem ekki komast á styrktarkvöldið en vilja leggja sitt af mörkum, er hægt að leggja inn á styrktarreikning kvöldsins, sem er skráður á skipuleggjanda kvöldsins, Ágústu Óskarsdóttur.

Kennitala: 240990-3269
Reikningsnúmer: 0123-26-120627

Dagskrá Styrktarkvöldsins.

Nýjar fréttir