Mánudaginn 5. október sl. var formlega opnað nýtt bráðarými á bráðamóttöku HSU á Selfossi ásamt endurbættri aðkomu fyrir sjúkrabíla. Markar opnunin endi á umfangsmiklum endurbótum á bráðamóttökunni sem ætlað er að styrkja bráðaþjónustuna og bæta aðstöðu bæði sjúklinga og starfsfólks.
Aðstaða sjúklinga og starfsfólks er orðin hin glæsilegasta auk þess sem aðgengi sjúkraflutningamanna að bráðamóttökunni er með besta móti, orðið nú skilvirkara og öruggara. Með nýrri aðstöðu skapast betri skilyrði til að veita örugga og faglega þjónustu allan sólarhringinn.

„Þessi opnun er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi. Bak við hverja framkvæmd sem þessa stendur öflugt starfsfólk sem sinnir krefjandi verkefnum allan sólarhringinn. Nýja aðstaðan er mikilvæg viðurkenning á því starfi,” segir Díana Óskarsdóttir forstjóri HSU við opnunina.
Díana sagði enn fremur að með bættri aðstöðu fyrir sjúklinga, starfsfólk og sjúkraflutningamenn styrkir HSU við getu sína til að veita örugga og skilvirka bráðaþjónustu fyrir íbúa svæðisins og þá fjölmörgu gesti sem sækja Suðurland.
„Óhætt er að starfsfólk sé í skýjunum, hvort sem það er starfsfólk bráðamóttökunnar eða sjúkraflutninga, þetta er mikil bót fyrir okkur,“ segir Heiðrún Kristmundsdóttir, verkefnastjóri HSU, í samtali við Dagskrána.
HSU þakkar sérstaklega sjúklingum, aðstandendum, starfsfólki og öðrum gestum fyrir mikla þolinmæði og skilning á meðan á framkvæmdum stóð.


