7.3 C
Selfoss

Átak hafið í endurheimt votlendis á ríkisjörðum

Vinsælast

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hleypti föstudaginn 2. október af stokkunum átaki stjórnvalda í endurheimt votlendis þegar hafist var handa við að loka framræsluskurðum á ríkisjörðinni Sogni í Ölfusi.

Alls verða 225 hektarar votlendis endurheimtir á fimm ríkisjörðum í haust og um 23 kílómetrum af framræsluskurðum lokað. Svæðið samsvarar um 315 fótboltavöllum. Að Sogni verða um 25 hektarar votlendis endurheimtir og rúmlega fjórum kílómetrum af skurðum lokað.

Verkefnið er hluti af fimm ára samstarfi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Lands og skógar og Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna. Markmiðið er að nýta ríkisjarðir til að vernda og endurheimta vistkerfi og stuðla að markmiðum Íslands í loftslagsmálum.

Jóhann Páll segir ríkið eiga að ganga á undan með góðu fordæmi og nýta tækifæri á eigin landi. Endurheimt votlendis hafi ekki aðeins loftslagsávinning heldur sé einnig mikilvæg fyrir náttúru og líffræðilega fjölbreytni.

Ef áætlanir næsta árs ganga eftir gæti meira votlendi verið endurheimt á þessu og næsta ári en samanlagt síðustu 30 ár hér á landi.

Samhliða endurheimtinni verður einnig unnið að því að greina óröskuð og lítt röskuð votlendissvæði á ríkisjörðum með það að markmiði að styrkja vernd þeirra.

Nýjar fréttir