Við í íþróttahreyfingunni á Selfossi söknum vinar. Árni Þór Grétarsson lést á Sjúkrahúsi Suðurlands þann 22. september sl. Árni Þór var okkur í handknattleiksdeild Selfoss einstakur vinur, félagi og sjálfboðaliði og hefur mörg undanfarin ár verið öflugasti sjálfboðaliði og stuðningsmaður okkar. Hann hefur um árabil verið sjálfboðaliði á öllum heimaleikjum allra meistaraflokka félagsins ásamt fjölda leikja og móta yngri flokka. Árni Þór var óþreytandi sjálfboðaliði þar sem hann sá meðal annars um samfélagsmiðla, myndatökur og var um árabil fararstjóri, bílstjóri og félagi yngri og eldri iðkenda deildarinnar í keppnisferðum bæði innanlands og utan.
Árni Þór byrjaði sem sjálfboðaliði í útsendingum á leikjum í félagssjónvarpinu „Selfoss TV“ sem sendi út frá öllum meistaraflokksleikjum í handknattleik og knattspyrnu í fjölda ára. Hann var sjálfboðaliði í öllum tæknimálum handboltans, hvort sem það var í útsendingum, heimasíðu, myndatökum og -vinnslu eða samfélagsmiðlum, eignaðist þar fjölda vina úr hópi sjálfboðaliða, starfsmanna og ekki síst iðkenda sem sóttust eftir félagsskap hans. Hann gætti þess að eiga inni sumarfrísdaga til að nota fyrir handboltann og hann var alltaf í fríi þá viku sem æfingamót Selfoss; Ragnarsmótið, stóð yfir í ágúst því þar vildi hann auðvitað vera til að halda um þræðina. Honum fannst sjálfsagt að fylgja keppendum eftir til Svíþjóðar sem fararstjóri, það var bara gaman og hann átti auðvitað inni sumarleyfisdaga fyrir því. Auk þess var hann fararstjóri og bílstjóri þegar á þurfti að halda og þær eru ófáar ferðirnar sem hann fór t.d. á Ísafjörð og Akureyri til að keyra yngri keppendur eða sem áhorfandi því honum fannst sjálfsagt að „renna á Ísafjörð“ til að sjá handboltaleik hjá Selfossi og bara gaman að renna á Akureyri og keyra yngri leikmenn í leik. Geri aðrir betur!
Árni Þór átti fyllilega skilið tilnefninguna til Íþróttaeldhugans árið 2025 fyrir sitt mikla framlag sem sjálfboðaliði. Hann fékk verðskuldaðar viðurkenningar sem „Félagi ársins“ hjá handknattleiksdeildinni, bæði sem hluti af Selfoss TV teyminu en líka sem einstaklingur árið 2020 fyrir sitt mikla framlag. Hann átti auðvitað þá viðurkenningu skilið mun oftar, reyndar árlega.
Hann kom flesta daga í íþróttahúsið eftir vinnu og var yfirleitt fram eftir kvöldi því hann fann sér alltaf verkefni til viðbótar við að vera til staðar og spjalla við unglingana sem áttu leið hjá. Alltaf var hann glaður og jákvæður og náði vel til unglinganna á sinn hógværa máta.
Það var mögnuð stund þegar Árni Þór kom sem heiðursgestur á opnunarleik Ragnarsmótsins í ágúst sl. þar sem fullt hús áhorfenda fagnaði honum, vinir hans, leikmenn, iðkendur og sjálfboðaliðar gátu heilsað honum og vinnufélagar fjölmenntu. Þá var hann heiðraður með gullmerki Umf. Selfoss og gullmerki HSÍ sem hann átti sannarlega skilið. Hann var auðvitað uppgefinn eftir kvöldið en sagði sjálfur að það væri allt í lagi; „ég þarf nefnilega ekki að fara neitt á morgun!“
Árni Þór talaði sjálfur um handboltaáhugafólk, leikmenn og sjálfboðaliða á Selfossi sem fjölskylduna sína. Við erum auðvitað stolt af því en nú höfum við séð á eftir kærum vini sem var mikill öðlingur og óþreytandi sjálfboðaliði sem sárt verður saknað, Árni hafðu þökk fyrir þitt mikla framlag.
Fjölskyldu og vinum sendum við innilegar samúðarkveðjur.
F.h. handknattleiksdeildar Umf. Selfoss
Þórir Haraldsson, formaður.


