„Í tengslunum leynast oft tækifærin,“ segir Gerða Björg Hafsteinsdóttir, nýr formaður FKA Suðurland, sem nýverið tók við formennsku í þessari öflugu deild innan Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA).
Aðalfundur FKA Suðurland var haldinn nýverið í Rauða húsinu á Eyrarbakka. Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum nutu félagskonur samverustundar þar sem horft var fram á veginn og ný stjórn tók formlega við störfum.

Ný stjórn FKA Suðurland
Stjórn deildarinnar starfsárið 2026-2027 skipa:
Gerða Björg Hafsteinsdóttir, formaður
Lína Björg Tryggvadóttir, gjaldkeri
Lóa Ingibergsdóttir, ritari
Helga Björg Þorgeirsdóttir, varakona
Hjördís Björk Ólafsdóttir, varakona
„Ég vil koma á framfæri þakklæti til fráfarandi stjórnar og eins hvatninguna að gefa kost á mér,“ segir Gerða.

Öflugur vettvangur fyrir konur í atvinnulífinu
FKA Suðurland telur ríflega sjötíu félagskonur sem starfa í fjölbreyttum greinum atvinnulífsins á Suðurlandi. Innan deildarinnar hafa myndast sterk tengsl og öflugt samfélag kvenna sem styðja hver aðra, deila reynslu og efla þátttöku kvenna í atvinnulífinu. Mikil gróska einkennir atvinnulíf landsvæðisins og gegna konur þar lykilhlutverki í rekstri og þróun fyrirtækja á sviði ferðaþjónustu, verslunar, handverks, hönnunar, útgáfu og fjölbreyttrar þjónustu. Markmið FKA Suðurland er að efla konur til ábyrgðar og aukinnar þátttöku í atvinnulífinu með jákvæðni, samvinnu og gleði að leiðarljósi.

Fyrsti viðburður haustsins fram undan
Ný stjórn hefur þegar hafið undirbúning komandi starfsárs og mun fyrsti viðburðurinn fara fram þann 30. september þegar FKA Suðurland heimsækir fyrirtækið Galleri Ozone. „Við erum að fara að kortleggja starfið og fyrsti viðburðurinn hjá deildinni er fyrirtækjaheimsókn í Galleri Ozone þann 30. september nk. Þar verða öflug erindi, afslátt og léttar veitingar. Þar sem þetta er fyrsti viðburðurinn vonumst við til að félagskonur fjölmenni og hvetum þær til að taka vinkonu með á þennan viðburð,“ segir Gerða.

Tengslanetið skiptir máli
Í samtölum við nýja stjórnina kemur skýrt fram hversu mikilvægt hlutverk tengslanet, vinátta og samstaða gegna í starfi félagsins. „Það er ekki nóg að manifesta, gerðu það sem þarf til að láta draumana rætast,“ segir Hjördís Björk og bætir við: „Með þetta hugarfar var ég komin í stjórn á mínum fyrsta fundi.“
Lóa Ingibergsdóttir segir að forvitni hafi leitt hana inn í félagið. „Ég gekk í FKA út af forvitni um hvernig konur hafa farið sína leið að árangri. Ég var að leitast eftir skemmtun, hlátri, samkennd. Allt hefur þetta raungerst og hef eignast vinkonur og eflt tengslanetið mitt gríðarlega með þátttöku í FKA,“ segir hún.
Helga Björg Þorgeirsdóttir tekur undir mikilvægi tengslamyndunar: „Ég gekk í FKA til að kynnast flottum konum í atvinnulífinu og auka tengslanetið.“
Lína Björg Tryggvadóttir segir félagið hafa reynst henni mikilvægur vettvangur eftir flutninga á Suðurland. „Ég gekk í FKA eftir að ég flutti á Suðurland og þekkti þar fáa. Ég er mikil félagsvera og langaði að kynnast öflugum konum, byggja upp nýtt tengslanet og hafa gaman í leiðinni,“ segir hún.
Sameiginleg reynsla stjórnarkvenna sýnir að virk þátttaka í starfi FKA getur opnað dyr að nýjum tækifærum, stuðlað að auknum sýnileika og skapað sterk og verðmæt tengsl.
„Því þegar allt kemur til alls eru það tengslin við fólkið í kringum okkur sem gera lífið ríkara,“ segir Lína að lokum og hvetur konur á Suðurlandi að skrá sig í félagið á heimasíðunni fka.is.



