6.2 C
Selfoss

Kjúklingur í rauðu karrýi

Vinsælast

Matgæðingur vikunnar er Héðinn Gunnarsson.

Ég þakka föður mínum kærlega fyrir tækifærið til að láta matgæðings ljós mitt skína. Ég ákvað að senda inn uppskrift að kjúklingi í rauðu karrýi með naan brauði. Þetta er nokkuð vinsælt á heimilinu þegar ég elda þetta. Þetta er svona cirka uppskrift þar sem ég á þetta hvergi niðurskrifað fyrr en nú. En fyrst ætlum við að hræra í naan brauð sem passar einstaklega vel með þessum rétti.

Naan brauð

  • 1,5 dl volgt vatn
  • 2 tsk sykur
  • 2 tsk þurrger
  • 4 dl hveiti
  • 1/2 tsk salt
  • 3 msk brætt smjör
  • 2 msk ab mjólk

Hvítlauks smjör til penslunnar

  • 50 gr brætt smjör
  • 1 hvítlauks rif, rifið útí brædda smjörið
  • Garam masala krydd
  • Sjávar salt

Aðferð

Blandið saman volgu vatni, ger og sykur í skál og látið standa  þar til það byrjar aðeins að freyða.

Blandið saman við gerblönduna hveiti,salt, smjör og ab mjólk. Blandið þessu vel og látið svo standa í svona hálftíma. Fínt að leyfa þessu að standa á meðan maður byrjar á að gera kjúklingaréttinn.

Svo á meðan kjúklingurinn mallar á eftir þá er gott að skipta deiginu í 6 hluta og fletja þá út og steikja á pönnu í örlítilli olíu, þar til brauðið verður gullin brúnt. Þegar brauðið er tekið af pönnunni er mjög gott að pensla það með smá hvítlauks smjöri, krydda með örlitlu garam masala og sjávar salti.

Kjúklingur í rauðu karrýi

  • 1–2 msk olía
  • 3 hvítlauksrif
  • Svona 2 cm bútur af engiferrót
  • 1/3 púrrulaukur
  • 3-4 gulrætur
  • 5 msk rautt karrýmauk (keypt í krukku útí búð)
  • 1/2 kjúklingateningur
  • Vatn
  • 1 dós kókosmjólk (400ml)
  • 1 msk sykur
  • 2 msk sojasósa
  • Svona 800 gr Kjúklingabringur
  • Edamame-baunir (frosnar)
  • Ferskur kóríander
  • Ferskt chili

Aðferð

Stundum nota ég eitthvað annað grænmeti, ég hef sett sæta kartöflu í þetta líka og svo sleppi ég stundum baununum, en þetta er svona algengasta útgáfan.

Byrjað er á því að hita olíu í potti og mýkja rifinn hvítlauk og rifið engifer við vægan hita.

Því næst set ég svo karrý maukið, ef fólki finnst ekki gott að hafa matinn sterkann þá má kannski setja aðeins minna en ég legg til þarna, en svo má líka fara framúr sér og setja meira.

Þetta er steikt aðeins áfram, svona 4 mínútur. Því næst bæti ég niðurskornum púrrulauk saman við og svo svona eitt glas af vatni (250 ml) og hálfur kjúklingateningur og sykur. Þetta er látið sjóða smástund og hrært á meðan, þar til svoldið af vökvanum gufar upp. Þá set ég gulræturnar niðurskornar útí og svo fer kókosmjólkin saman við.

Kjúklingnum er síðan bætt út í ég sker bringurnar bara í nokkuð stóra bita, hver í bringa í svona 6 bita og allt látið malla við vægan hita í góðan hálftíma. Nokkrum mínútum áður en maturinn er borinn fram bæti ég edamame-baununum út í svo þær haldi aðeins bitinu.

Rétturinn er borinn fram með hrísgrjónum, ferskum kóríander, söxuðu fersku chili og að sjálfsögðu naan brauðunum sem við vorum að baka.


Ég ætla að fara að fordæmi föður míns og skora á son minn Hlyn Héðinsson og bíð spenntur eftir því að sjá hvað hann ætlar að bjóða matgæðingum suðurlands uppá.

Nýjar fréttir