11.8 C
Selfoss

Kirkja hins heilaga Kross vígð á Selfossi 

Vinsælast

Laugardagurinn 5. september 2026 verður lengi í minnum hafður í sögu kaþólsku kirkjunnar á Suðurlandi. Þann dag vígði Davíð Bartimej Tencer biskup hina nýju Kirkju hins heilaga Kross á Selfossi að viðstöddu miklu fjölmenni.

Kirkjan stendur við Móaveg, skammt frá bökkum Ölfusár. Samkvæmt upplýsingum Reykjavíkurbiskupsdæmis komu um 600 manns saman til vígslunnar. Sama dag fór jafnframt fram æskulýðsdagur biskupsdæmisins á Selfossi í blíðskaparveðri.

Athöfnin hófst fyrir utan kirkjuna þar sem Davíð biskup og Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar, klipptu á borða við inngang kirkjunnar. Að því loknu hófst sjálf vígsluathöfnin og hátíðarmessan.

Fleiri komu en kirkjan rúmaði

Mætingin fór fram úr björtustu vonum, meira að segja svo að naumt varð um plássið. Færri komust inn í kirkjuna en vildu. Setið var í öllum sætum og fólk stóð horna á milli og fyllti salinn milli veggja, ganginn og út um dyr kirkjunnar. Einnig stóð fólk úti við gluggana og horfði inn og sumir fylgdust þannig með nær allri athöfninni.

Þessi mikli fjöldi setti sterkan svip á alla vígsluna. Fyrir þann sem tók þátt í helgihaldinu var áhrifamikið að syngja litaníuna og heyra svör þessa mikla safnaðar óma til baka. Sú stund gleymist ekki.

Það er athyglisvert að bera þetta saman við stöðuna aðeins ári fyrr. Sunnudaginn 14. september 2025, á hátíð upphafningar hins heilaga Kross, var messað í kapellunni í Smáratúni 12 á Selfossi. Hún rúmaði liðlega 30 manns og var þéttsetin. Þann dag flutti séra Denis O’Leary söfnuðinum þær gleðifréttir frá Davíð biskupi að frá þeim degi hefði verið stofnuð sérstök Sókn hins heilaga Kross á Selfossi.

Tæpu ári síðar komu um 600 manns til vígslu nýju kirkjunnar – og jafnvel hún rúmaði ekki alla sem vildu vera viðstaddir.

Ragnar Geir Brynjólfsson

Hægt er að lesa grein Ragnars í fullri lengd á kirkju.net.

Nýjar fréttir