12.2 C
Selfoss

Herratrefill

Vinsælast

Í samstarfi við Bobbý bætist við ný uppskrift í hannyrðahornið. Prjónauppskrift Bobbýjardætra að þessu sinni er herratrefill.

GARN:

Kelbourne Scout 2 hespur eða Big Bio Balance 2 hespur.

Garnið fæst hjá Bobbý Hveragerði og bobby.is

STÆRÐIR:

Lengd trefils er ca 120-150 cm.

ÞAÐ SEM ÞARF:

Hringprjóna 5 mm 60 cm eða 80 cm.

Stoppunál til að ganga frá endum.

LESIÐ VEL YFIR UPPSKRIFTINA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER!

TÆKNIUPPLÝSINGAR :

Trefilinn er prjónaður fram og til baka með Icord kantlykkjum í báða enda.

Mynstrið er prjónað með sléttum og brugðnum lykkjum á réttu og röngu (ath mynsturteikningu, sléttar lykkjur sléttar á réttunni og brugðnar á röngunni, brugðnar lykkjur brugðnar á réttunni og sléttar á röngunni).

UPPSKRIFT:

Fitjið laust upp 44 lykkjur á 5 mm prjón og prjónið 2 lykkjur slétt (kantlykkjur). Prjónið mynstur eftir teikningu þar til að 2 lykkjur eru eftir á prjóninum, setjið þá bandið fyrir framan og takið óprjónuðu lykkjurnar 2 yfir á hægri prjón, snúið við og hafið bandið fyrir aftan og prjónið slétt þessar 2 lykkjur sem voru óprjónaðar (kantlykkjur). Prjónið mynstur eftir teikningu þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóninum setjið bandið fyrir fram og takið óprjónuðu lykkjurnar yfir, snúið við.

Þessar umferðir eru endurteknar þar til trefillinn er hæfilega langur.

  • = Brugðin lykkja á réttu en slétt á röngu.

□ = Slétt lykkja á réttu en brugðin á röngu.

Bara muna að tvær síðustu lykkjurnar eru alltaf teknar óprjónaðar yfir á hægri prjón með bandið fyrir framan og tvær fyrstu lykkjurnar eru alltaf prjónaðar sléttar.

Fellið laust af.

Þvoið trefilinn í höndum, skolið og kreistið mesta vatnið úr leggið til þerris.

Möguleiki er að setja í þvottavél ef þið treystið handþvottakerfinu ykkar og vindið aðeins í stutta stund 1-2 mín.


Okkur þætti vænt um að ef þú setur peysuna á samfélagsmiðla að merkja okkur í póstinum @bobbyjardaetur

Ef aðstoðar er þörf hafið samband við okkur í tölvupósti info@bobby.is.

Uppskrift:
Bobbýjardætur
Breiðumörk 13, Hveragerði – Sími 774 2324
info@bobby.is – www.bobby.is

Nýjar fréttir