11.8 C
Selfoss

Ný dreifingarmiðstöð Eimskips styrkir innviði og atvinnulíf á Suðurlandi

Vinsælast

Fyrsta skóflustungan að nýrri dreifingarmiðstöð Eimskips að Breiðumýri 8 á Selfossi var tekin sl. föstudag og eru framkvæmdir hafnar. Áætlað er að starfsemi fyrirtækisins flytjist úr núverandi húsnæði að Háheiði 8 í ágúst 2027.

Nýja dreifingarmiðstöðin er hönnuð með þarfir samfélagsins á Suðurlandi í huga og byggð þannig að hægt verði að stækka hana samhliða áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu. Um er að ræða 1.290 fermetra húsnæði á rúmlega 10.000 fermetra lóð sem gefur svigrúm til frekari vaxtar á komandi árum.

F.v. Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri Eimskip, Bragi Bjarnason bæjarstjóri Árborgar, Stefán Magnússon svæðisstjóri Eimskip á Suðurlandi,  Bergljót Soffía Benediktsdóttir forstöðumaður aksturs og svæðisskrifstofa hjá Eimskip, Elísa Dögg Björnsdóttir framkvæmdastjóri innanlandssviðs Eimskip og Óskar Magnússon stjórnarformaður Eimskip. Mynd: Dagskráin/DFS.

„Það er ekki á hverjum degi sem við förum af stað með svona framkvæmdir. Við erum ákaflega stolt af því að þetta sé farið af stað og við munum nýta húsið til að létta á okkar innviðum í Reykjavík,“ segir Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, við fyrstu skóflustungu.

Dreifingarmiðstöðin verður búin nýjustu lausnum á sviði vörumeðhöndlunar, kæli- og frystigeymslu, sjálfvirkrar skönnunar og hleðslu- og losunarbúnaðar. Markmið framkvæmdarinnar er að styrkja þjónustu við fyrirtæki og heimili á Suðurlandi, bæta aðstöðu starfsfólks og skapa skilvirkari og sjálfbærari innviði fyrir flutninga á svæðinu.

Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips sá um að taka fyrstu skóflustungu að nýrri dreifingarmiðstöð Eimskips að Breiðumýri 8 á Selfossi. Mynd: Dagskráin/DFS.

Byggt fyrir samfélag í örum vexti

Dreifingarmiðstöð Eimskips á Selfossi þjónar í dag Árnes- og Rangárvallasýslum, frá Selvogi í vestri að Markarfljóti í austri. Frá því starfsemin flutti í núverandi húsnæði árið 2011 hefur íbúafjöldi á þjónustusvæðinu aukist um meira en helming og atvinnulíf svæðisins tekið miklum breytingum.

Þróunin hefur aukið eftirspurn eftir öruggri og áreiðanlegri flutningaþjónustu, jafnt fyrir fyrirtæki, stofnanir og heimili. Ný dreifingarmiðstöð er svar við þeirri þróun og mikilvæg fjárfesting í innviðum sem styðja við áframhaldandi vöxt svæðisins.

„Suðurland hefur verið eitt hraðast vaxandi svæði landsins undanfarin ár og við teljum mikilvægt að innviðir fyrirtækisins þróist í takt við þá uppbyggingu sem þar á sér stað. Með þessari fjárfestingu erum við að styrkja þjónustu við viðskiptavini okkar, bæta aðstöðu starfsfólks og byggja upp skilvirkari og sjálfbærari starfsemi til framtíðar,“ segir Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips.

Betri tengingar og sjálfbærari flutningar

Staðsetningin að Breiðumýri var valin með hliðsjón af samgöngum, umferðaröryggi og sjálfbærni. Öll starfsemi verður neðan götu og athafnasvæði afgirt með aðgangsstýrðu hliði til að tryggja öryggi starfsfólks og vegfarenda.

Með nýrri Ölfusárbrú og bættum tengingum við helstu samgönguæðar landsins styttast flutningsleiðir og dregið verður úr þungaflutningum um þéttbýli Selfoss. Þetta mun leiða til minni eldsneytisnotkunar, lægri losunar og hagkvæmari flutninga, samhliða bættri þjónustu og auknu afhendingaröryggi fyrir viðskiptavini um allt Suðurland.

Hluti starfsfólk Eimskip á Suðurlandi mætti á viðburðinn til að fagna fyrstu skóflustungunni. Á myndinni má sjá hluta starfsfólks Eimskip á Suðurlandi, en í dag vinna 15 manns á starfsstöðinni, ásamt stjórnendum hjá Eimskip þegar fyrstu skóflustunginni var fagnað.  Á mynd: Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri Eimskip, Tyler Jónsson bílstjóri, Arnór Elí Stefánsson bílstjóri, Óskar Magnússon stjórnarformaður Eimskip,  Máni Snær Knútsson bílstjóri, Ásgeir Andri Sigurðsson bílstjóri, Sigurbjörn Jón Knudsen verkstjóri,  Auðunn Óskar Jónasson bílstjóri, Stefán Örn Óskarsson bílstjóri, Stefán Magnússon svæðisstjóri Eimskip á Suðurlandi, Elísa Dögg Björnsdóttir framkvæmdastjóri innanlandssviðs Eimskip og  Bergljót Soffía Benediktsdóttir forstöðumaður aksturs og svæðisskrifstofa hjá Eimskip. Mynd: Dagskráin/DFS.

Sunnlenskt verkefni

Verkefnið er að stærstum hluta unnið af sunnlenskum fyrirtækjum. Húsið er hannað af Eflu á Selfossi og byggt af Landstólpa í Gunnbjarnarholti. Þá koma fjölmargir sunnlenskir verktakar að framkvæmdinni á sviði jarðvinnu, raflagna og pípulagna.

Framkvæmdin styrkir því ekki aðeins starfsemi Eimskips heldur skapar jafnframt verkefni, verðmæti og atvinnu á svæðinu á framkvæmdatímanum.

„Árborg hefur vaxið hratt á undanförnum árum og áframhaldandi uppbygging atvinnulífs er ein af forsendum þess að samfélagið geti þróast með sjálfbærum hætti. Það er fagnaðarefni að sjá fyrirtæki eins og Eimskip fjárfesta til framtíðar á svæðinu og styrkja um leið bæði þjónustuinnviði og atvinnulíf sveitarfélagsins,“ segir Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Árborgar.

Fjárfesting í framtíð Suðurlands

Ný dreifingarmiðstöð Eimskips er stærsta fjárfestingarverkefni fyrirtækisins á árinu 2026 og endurspeglar þá trú sem fyrirtækið hefur á áframhaldandi uppbyggingu Suðurlands.

Þegar fyrirtæki fjárfesta í innviðum eru þau um leið að fjárfesta í samfélaginu sem þau starfa í. Ný dreifingarmiðstöð Eimskips er framlag til sterkara Suðurlands, bættra þjónustugæða og aukinna tækifæra fyrir íbúa, fyrirtæki og atvinnulíf á svæðinu til framtíðar.

Nýjar fréttir