15.4 C
Selfoss

Töðugjöld 2026 tókust með eindæmum vel

Vinsælast

Töðugjöld 2026 fóru fram í Rangárþingi ytra dagana 11.–16. ágúst og óhætt er að segja að hátíðin hafi tekist með eindæmum vel. Veðrið lék við hátíðargesti alla dagana og góð þátttaka var í fjölbreyttri dagskrá víðs vegar um sveitarfélagið.

Hátíðin hófst með Töðugjaldagöngu Ferðafélags Rangæinga og síðar í vikunni bauð fjölskyldan á Skeiðvöllum gestum í heimsókn. Á föstudeginum fór Töðugjaldahlaupið fram og um kvöldið var komið að hinu vinsæla Þorpararölti þar sem Fjólubleika hverfið tók á móti gestum.

Laugardagurinn var stærsti hátíðardagurinn og hófst með samfélagsmorgunverði í íþróttahúsinu á Hellu. Töðugjaldamarkaður, tækjasýning, listasmiðjur og fjölbreytt barnadagskrá settu síðan svip sinn á daginn. Gunni og Felix skemmtu, Lína Langsokkur mætti á svæðið, boðið var upp á hoppukastala, hæfileikakeppni barna og gæludýrakeppni og nýr gervigrasvöllur var vígður í tengslum við leik KFR og Álafoss.

Hápunktur laugardagsins var kvöldvakan sem sneri aftur á Rangárbakka í ár. Þar skapaðist einstök stemning í blíðskaparveðri og fjölmenni. Gunni og Felix leiddu kvöldið og fram komu Herra Hnetusmjör, Bjartmar Guðlaugsson og KK. Guðrún Árný stýrði brekkusöng og kvöldvökunni lauk með glæsilegri flugeldasýningu Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu. Að henni lokinni tók við dansleikur í Reiðhöllinni með Sunnan 6 og Jónsa í Svörtum fötum.

Hátíðinni lauk á sunnudeginum með fjölskyldudagskrá þar sem meðal annars Leikhópurinn Lotta og Youth Art Studio komu við sögu.

Í skreytingakeppni Töðugjalda var Langalda 20 valið best skreytta húsið. Glódís og Eiríkur lögðu mikinn metnað í skreytingarnar og voru vel að sigrinum komin. Að verðlaunum hlutu þau veglegt Landmann-grill frá Húsasmiðjunni.

Fjöldi einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og sjálfboðaliða kom að undirbúningi og framkvæmd Töðugjalda og átti sinn þátt í að skapa þá góðu stemningu sem einkenndi hátíðina í ár. Rangárþing ytra færir öllum sem lögðu hönd á plóg, sem og íbúum og gestum hátíðarinnar, bestu þakkir fyrir frábær Töðugjöld 2026.

Meðfylgjandi myndir eru frá Óla mynd.

 

Nýjar fréttir