15.4 C
Selfoss

Sveinbjörn nýr varaslökkviliðsstjóri

Vinsælast

Sveinbjörn Már Birgisson hefur verið ráðinn nýr varaslökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Rangárvallasýslu. Alls voru fimm umsækjendur um starfið en tveir drógu umsókn sína til baka.

Sveinbjörn hefur starfað hjá Brunavörnum Rangárvallasýslu frá árinu 2000 sem slökkviliðsmaður og frá árinu 2018 sem varðstjóri með stjórnendabakvaktir. Hann býr því yfir afar umfangsmikilli reynslu af starfsemi slökkviliðs og þekkingu á starfsemi brunavarna og viðbragðsþjónustu.

Sveinbjörn mun hefja störf hjá Brunavörnum Rangárvallasýslu á næstu vikum.

Nýjar fréttir