15.4 C
Selfoss

Yfir 300 manns hafa mótmælt lokun hjúkrunarheimilisins Ljósheima á Selfossi

Vinsælast

Liðlega þrjú hundruð manns hafa þegar mótmælt lokun hjúkrunarheimilisins Ljósheima á Selfossi með því að rita nafn sitt á undirskriftalistann „Mótmælum lokun hjúkrunarheimilisins Ljósheima á Selfossi“ á vefnum Island.is. Með lokun þess er verið að fórna 20 hjúkrunarrýmum eða um 20% hjúkrunarrýma í sveitarfélaginu Árborg og þá nýlega byggðu hjúkrunarheimili sem tekið var í notkun árið 2008. Húsnæði sem var sérstaklega byggt og hannað sem hjúkrunarheimili og þá með öllum þeim kröfum og þörfum sem fylgja hjúkrun eldri borgara. Þarna eru vistarverurnar einstaklingsherbergi þar sem hver vistmaður er ekki aðeins í sínu eigin herbergi heldur hefur líka sína eigin salernisaðstöðu, innsteyptir sleðar eru í loftum fyrir færanlegar lyftur og samkomu- og matsalur eru í miðju rými og í vesturendanum er skemmtilegur garðskáli. Á meðan þetta er að raungerast þá eru margir tugir einstaklinga á biðlista.

Fyrir níu árum var hjúkrunarheimilinu að Kumbravogi á Stokkseyri (56 rými) lokað og hafist var þá handa við að byggja hjúkrunarheimilið Móberg (60 rými) við Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) á Selfossi. Móberg var síðan tekið í notkun fyrir fjórum árum og var þá fjöldi hjúkrunarrýma í sveitarfélaginu orðinn u.þ.b. sá sami og hann var er Kumbravogur var starfræktur. Á þessum sama tíma hefur íbúum sveitarfélagsins fjölgað um helming eða úr 8 þúsund í 13 þúsund manns. Í þessu fjölmennasta sveitarfélagi Suðurlands, sem jafnframt er stærsti þjónustukjarni svæðisins, býr um helmingur íbúa Árnessýslu.

Þegar hjúkrunarheimilið Ljósheimar var byggt fyrir tæpum tuttugu árum var það hugsað sem fjárfesting til lengri tíma og vandað var til verka, enda ekki hugsað sem skammtímalausn. Með lokun Ljósheima er hvorki verið að hugsa um hag eldri borgara né skynsamlega meðhöndlun á skattfé landsmanna. Áætla má að það kosti um hálfan milljarð að breyta hjúkrunarheimilinu Ljósheimum í skrifstofuhúsnæði fyrir heilsugæsluna. Hvers vegna á að byrja á því að fórna um 20% af nýlegum hjúkrunarrýmum sveitarfélagsins og um hálfum milljarði króna af skattfé almennings þegar hefjast á handa við að byggja á um 5200 m2 viðbyggingu við HSU, sem tengist við norðurenda elsta hluta hússins? Er ekki eitthvað að aðferðafræðinni hér? Það á ekki að vera valkostur í þessu væntanlega nýja skipulagi HSU að eyðileggja nýlega byggt hjúkrunarheimili, sem byggt var og hannað sem hjúkrunarheimili til lengri tíma. Þetta er ekki forsvaranleg framkvæmd og þá hvorki gagnvart eldri borgurum þessa sveitarfélags né íbúum Suðurlands. Heilbrigðisráðuneytið þarf að koma upp með aðra lausn þar sem það valtar ekki yfir eldri borgara þessa svæðis með því að loka um 20% af hjúkrunarrýmum sveitarfélagsins með því að loka Ljósheimum og breyta þessu nýlega og sérhönnuðu hjúkrunarrými í skrifstofur sem kosta mun skattborgara um hálfan milljarð króna.

Aldís Sigfúsdóttir

Nýjar fréttir