Matgæðingur vikunnar er Kolfinna Sjöfn Ómarsdóttir.
Ég þakka áskorunina og er heiður að hafa verið valin sem matgæðingur vikunnar!
Ég ætla að sýna ykkur mjög svo einfaldan rétt sem er virkilega hollur og góður.
Eins er hægt að aðlaga hann að eigin smekk með því að leika sér með fyllinguna, en hingað til hefur þetta verið skotheld uppskrift sem hefur ekki fengið neinar kvartanir!
Fylltar sætar kartöflur
(Fyrir tvo)
Hráefni:
1 Sæt kartafla
1/2 piparostur
2 kjúklingabringur
4 sveppir
1 paprika
Döðlur og krydd eftir smekk
Aðferð:
Byrjið á að skera kjúkling í strimla og marinera eftir smekk. Gott er að nota salt, pipar, hvítan pipar, paprikukrydd og smá hunang eða púðursykur.
Skerið sætu kartöfluna í tvennt eftir endilöngu og penslið með olíu. Hún er sett í eldfast mót og inn í ofn með hýðið upp.
Hafið hana inni í ofni á 200° í svona klukkutíma eða þar til hún er orðin mjúk í gegn.
Skerið papriku og sveppi í bita. Skerið piparost í ræmur og saxið niður döðlur.
Steikið kjúklinginn á pönnu þar til hann er eldaður í gegn, setjið þá paprikuna og sveppina á pönnuna og steikið með.
Þegar kartaflan er orðin mjúk, takið hana úr ofninum og skafið innan úr henni helminginn af kartöflunni, passið samt að skafa ekki alveg af köntunum svo hún haldist uppi þegar fyllingin er sett í hana.
Setjið það sem tekið var úr kartöflunni á pönnuna með grænmetinu og kjúklingnum og hrærið saman við.
Fyllingunni er svo raðað ofan í kartöfluna og piparosti og döðlum raðað yfir eftir smekk.
Setjið svo kartöfluna aftur inn í ofn í um það bil 10 mínútur eða þar til osturinn er orðinn mjúkur eða bráðnaður.
Verði ykkur að góðu!
Ég skora á ömmu mína hana Ásgerði Sjöfn Guðmundsdóttur, hún er alltaf að brasa í eldhúsinu að elda eitthvað gómsætt.
Mynd:
(Kolfinna)

