Skítamórall snýr aftur á alvöru sveitaballa „singalong“ um verslunarmannahelgina að þessu sinni í Aratungu í reykholti.
„Eini munurinn er kannski sá að við förum á svið klukkan 21:00 og það er 25 ára aldurstakmark. Markhópurinn okkar vill syngja úr sér lungun, komast heim á skikkanlegum tíma og vakna svo eldhress daginn eftir til að fara með barnabörnin í ungbarnasund. Svona er lífið,“ segir Addi Fannar gítarleikari. Laugardagskvöldið 1. ágúst, aðalhátíðarkvöld verslunarmannahelgarinnar, snýr Skítamórall aftur á rætur sínar þegar hljómsveitin stígur á svið í Aratungu í Biskupstungum. Það er orðið þó nokkuð síðan sveitin lék síðast á hefðbundnu sveitaballi og tilhlökkunin innan hljómsveitarinnar er mikil.
Hljómsveitina Skítamóral skipa Gunnar Ólason í söng og á gítar, Jóhann Bachmann á trommur, Herbert Viðarsson á bassa, Gunnar Þór Jónsson á gítar og Arngrímur Fannar Haraldsson á gítar.

Aratunga hefur í gegnum árin verið vettvangur fjölmargra eftirminnilegra dansleikja og nú ætla Skítamóralsmenn að endurvekja þá stemningu sem einkenndi íslensk félagsheimili um áratugaskeið.
„Það er eitthvað sérstakt við sveitaböllin. Þar er fólk mætt til að skemmta sér, syngja með og hitta gamla vini. Það er stemning sem verður ekki búin til annars staðar,“ segir talsmaður hljómsveitarinnar.
Kvöldið verður með hefðbundnu sveitaballasniði þar sem Skítamórall fer með öll sín vinsælustu lög og gestir geta átt von á fjöri fram á kvöld. Þetta verður bara alveg eins og í old days: „Það verður enginn bar, þannig að fólk getur stungið pelanum í vasann en fengið sér einn bauk með. Það hefur nú alltaf verið hluti af sveitaballamenningunni.“
Viðburðurinn hefst klukkan 21:00 og verður dansað fram til miðnættis.
Miðar eru seldir á Tix.is og búist er við góðri aðsókn enda er þetta eitt fárra tækifæra sumarsins til að upplifa Skítamóral á alvöru sveitaballi í íslensku félagsheimili.


