Miðbær Selfoss býður íbúum Hveragerðis upp á fría rútu til að koma og njóta brekkusöngsins sem sýndur verður á risaskjá á torginu í Miðbæ Selfoss næsta sunnudagskvöld.
Rútan leggur af stað frá Hótel Örk klukkan 19:00 og ekur gestum í miðbæ Selfoss. Heimferð verður klukkan 00:00, þannig að gestir geta notið kvöldsins án þess að hafa áhyggjur af akstrinum.
Stemningin hefst strax í rútunni þar sem trúbadorinn Pálmi Hjalta tekur á móti farþegum með tónlist og góða skapinu. Hann heldur síðan áfram að skemmta á torginu í miðbænum fram eftir kvöldi.
Fyrir þá sem vilja gera extra vel við sig er hægt að bóka flöskuborð á nokkrum af veitingastöðum miðbæjarins, meðal annars á Fröken Selfoss, MAR og Miðbar.
Rútan er Hvergerðingum að kostnaðarlausu en nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram.
Hægt er að bóka sæti með því að fylla út skráningarformið hér:
https://forms.gle/KjenKkhMtb1P7LF46

