17.3 C
Selfoss

Söngvaseiður – hugleiðslu og tónheilun í Jógahorninu

Vinsælast

Miðvikudaginn 29. júlí klukkan 19:30, verður boðið upp á kyrrðarstund undir yfirskriftinni Söngvaseiður – hugleiðsla og slökun með tónheilun í Jógahorninu í Þorlákshöfn.

Það er Unnur Arndísardóttir, jógakennari og tónlistarkona, sem leiðir stundina. Hún mun leiða þátttakendur í hugleiðslu og mjúka slökun með söng og rólegum trommuslætti, með það að markmiði að skapa notalegt rými til að næra líkama og sál.

„Í nútímasamfélagi þar sem allt gerist á miklum hraða er mikilvægt að hægja örlítið á sér og næra líkama og sál.
Með hugleiðslu og slökun tengjumst við friðnum hið innra og færum kyrrð og sátt inn í líf okkar og umhverfi.“

Engin reynsla af jóga eða hugleiðslu er nauðsynleg til að taka þátt. Einnig er hægt að sitja eða liggja allan tímann og því er hreyfihömlun af öllum toga ekki fyrirstaða þátttöku.

Skráning og nánari upplýsingar fást hjá Unni Arndísardóttur í gegnum netfangið uni@uni.is. Frekari upplýsingar um viðburðinn má einnig finna á heimasíðu hennar.

Sjá heimasíðu:
Söngvaseiður

Nýjar fréttir