Grillkeppni Kótelettunnar fór fram á Selfossi um síðustu helgi þar sem keppt var í tveimur flokkum, annars vegar flokki áhugamanna og hins vegar fagmanna.
Guðmundur Sigurðsson stóð uppi sem sigurvegari í flokki áhugamanna. Auk hans tóku Kaspars Kalnins og Jonathan Jesus Arriojas þátt í keppninni.
Í flokki fagmanna bar Alexander Brynjarsson sigur úr býtum. Með honum kepptu Aron Elvar Bjarkason, Hilmar Þór Harðarson og Manuel Gamon Gonzalez.
Dómarar í báðum flokkum voru Grilldrottningin, BBQ Kóngurinn, Jói Fel og Helvítis Kokkurinn. Þeir fengu það vandasama hlutverk að leggja mat á réttina og velja grillmeistara Kótelettunnar í hvorum flokki.
Myndir frá áhugamannakeppninni




Myndir frá fagmannakeppninni









