Bikarkeppni 15 ára og yngri í frjálsum íþróttum fór fram á ÍR-vellinum laugardaginn 11. júlí. Keppendur frá HHF og HSK-Selfossi tóku höndum saman og kepptu undir merkjum sameiginlegs liðs. Til leiks mættu eitt stúlknalið og tvö piltalið.
Liðið vann til fjölmargra titla og hafnaði í öðru sæti í heildarkeppninni. Aðstæður voru góðar og ríkti mikil stemning í hópnum.
Stúlknaliðið hafnaði í fjórða sæti, skammt á eftir liðinu í þriðja sæti. Ásta Kristín Ólafsdóttir frá Selfossi varð bikarmeistari í spjótkasti þegar hún bætti sinn besta árangur og kastaði 44,44 metra. Hún varð einnig í þriðja sæti í kúluvarpi.
Magnea Furuhjelm Magnúsdóttir frá Dímoni sigraði í báðum sínum greinum. Hún hljóp 80 metra grindahlaup á 12,82 sekúndum og stökk 5,14 metra í langstökki. Filippía Brynjarsdóttir frá Selfossi varð þriðja í kringlukasti með 18,70 metra kasti.
A-lið pilta varð í þriðja sæti í heildarstigakeppninni og B-liðið fylgdi fast á eftir í fjórða sæti. Birkir Aron Ársælsson frá Selfossi sigraði í spjótkasti með 44,55 metra kasti og bætti um leið sinn besta árangur. Með kastinu tryggði hann sér sæti í landsliðshópi unglinga.
Kristján Karl Gunnarsson frá Selfossi kastaði 39,76 metra í spjótkasti, næstlengst allra keppenda, og tryggði B-liðinu mikilvæg stig. Magnús Tryggvi Birgisson frá Selfossi varð bikarmeistari í kringlukasti með 38,58 metra kasti og hafnaði auk þess í þriðja sæti í langstökki með 5,20 metra.
HHF-keppendurnir Daníel Már Ólafsson og Frosti Þór Ásgeirsson náðu einnig á verðlaunapall fyrir A-liðið. Daníel sigraði í kúluvarpi með 13,03 metra kasti og Frosti varð annar í hástökki eftir að hafa stokkið 1,60 metra.


