12.3 C
Selfoss

Slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu lætur af störfum

Vinsælast

Pétur Pétursson hefur látið af störfum sem slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu. Vísir.is greindi frá þessu í dag.

Samkvæmt frétt Vísis lét Pétur af störfum eftir að stjórn Brunavarna Árnessýslu bárust ábendingar varðandi stjórnarhætti hans. Sveinn Ægir Birgisson, formaður stjórnarinnar, segir ákveðna þætti í stjórnun Péturs nú vera til skoðunar en hefur ekki greint nánar frá eðli þeirra.

Málinu hefur ekki verið vísað til lögreglu að svo stöddu. Haft er eftir Sveini Ægi að beðið verði niðurstöðu skoðunarinnar áður en tekin verður ákvörðun um framhaldið.

Nýjar fréttir