11.6 C
Selfoss

Mál er varðar fjárreiður Brunavarna Árnessýslu til rannsóknar

Vinsælast

Stjórn Brunavarna Árnessýslu hefur vísað máli sem varðar fjárreiður byggðasamlagsins til rannsóknar lögreglu. Upplýsingar um málið komu fram við yfirferð stjórnar á tilteknum þáttum í starfseminni.

Í tilkynningu stjórnar kemur jafnframt fram að samkomulag hafi náðst við Pétur Pétursson, fyrrverandi slökkviliðsstjóra, um uppsögn og lok ráðningarsambands hans. Pétur hefur þegar látið af störfum. Lárus Kristinn Guðmundsson varaslökkviliðsstjóri hefur verið ráðinn tímabundið í starf slökkviliðsstjóra.

Stjórn Brunavarna Árnessýslu segist líta málið alvarlegum augum. Þar sem það sé nú til rannsóknar hjá lögreglu verði ekki tjáð sig frekar um efni þess að svo stöddu. Jafnframt sé lögð áhersla á að rannsóknin fari fram samkvæmt lögum og að réttur allra aðila verði virtur.

Dagleg starfsemi Brunavarna Árnessýslu heldur áfram með eðlilegum hætti og segir stjórnin að lögbundin þjónusta og viðbragðsgeta séu óskert. Rannsókn málsins muni heldur ekki hafa áhrif á framkvæmdir og uppbyggingu sem þegar er hafin innan Brunavarna Árnessýslu.

Brunavarnir Árnessýslu eru byggðasamlag í eigu aðildarsveitarfélaganna og annast lögbundna brunavarna- og viðbragðsþjónustu á starfssvæðinu. Starfsemin er fjármögnuð af sveitarfélögunum.

Nýjar fréttir