Meistaramót Golfklúbbsins Flúða fór fram um síðustu helgi við frábærar undirtektir. Alls tóku 46 kylfingar þátt í mótinu og var mikil stemning meðal keppenda bæði innan vallar sem utan. Að lokinni spennandi keppni stóðu Magdalena Þórisdóttir og Albert Einarsson uppi sem klúbbmeistarar, Magdalena í kvennaflokki og Albert í karlaflokki.
Fyrri keppnisdaginn lék veðrið við þátttakendur og bauð upp á kjöraðstæður til golfiðkunar. Keppnin var jöfn og spennandi og ljóst að hart yrði barist um efstu sætin á lokadeginum. Vel var hugsað um kylfingana á meðan á leik stóð. Boðið var upp á rúgbrauð með smjöri og kæfu áður en haldið var af stað, kaffi og kökur eftir níundu holu, sveppasúpu við 14. teig og veitingar frá Sweet & Smooth við 18. holu.
Veðrið var öllu lakara á seinni keppnisdeginum en það virtist ekki draga úr gleði þátttakenda. Að leik loknum var efnt til glæsilegs lokahófs þar sem úrslit mótsins voru kynnt og verðlaun afhent.
Geir Ólafsson sá um ljúfa tóna undir borðhaldi og boðið var upp á veglega máltíð. Þá skemmtu Siggi vallarstarfsmaður og Kata í Kaffi-Sel gestum með söngatriði og leikarinn Arnar Jónsson, sem jafnframt er félagsmaður í klúbbnum, steig á stokk.
Almenn ánægja var með mótið, umgjörð þess og skipulagningu.


