Önnur umferð Íslandsmótsins í motocross fór fram á Akranesi laugardaginn 27. júní. Rúmlega 70 keppendur tóku þátt í mótinu sem haldið var á vegum VÍFA.
Keppendur UMFS náðu góðum árangri og komust á verðlaunapall í fjórum flokkum. Eric Máni bar sigur úr býtum í MX2-flokki, Alexander Adam hafnaði í þriðja sæti í MX1-flokki, Ásta Petrea varð í öðru sæti í kvennaflokki og Sindri Steinn náði öðru sæti í Hobby-flokki.
Þriðja umferð Íslandsmótsins fer fram á Höfn í Hornafirði þann 18. júlí næstkomandi.
UMFS


