13.4 C
Selfoss

Hrátt hreindýr í forrétt

Vinsælast

Matgæðingur vikunnar er Páll Jónsson.

Takk fyrir áskorunina.

Ég er mikið fyrir góða forrétti og þetta er einn af þeim. Hann er mikið notaður í veiðiferðum eftir oft mikið slark og vosbúð. Ef ekki er til hreindýrakjöt í frystinum þá er hægt að nota hvaða kjöt sem er, t.d. hrossa-, nauta- eða ærkjöt, bara að velja bita sem eru hæfilega stórir og lausir við sinar og himnur.

Kjöt

300-400 g hreindýrakjöt (best að nota fillet)

Sósa yfir kjötið

2 dl sojasósa (Finnst best að nota saltminni sojasósu, t.d. Kikkoman með grænum tappa)
0,5 dl Sweet chili sósa
1-3 msk. wasabi-mauk (fer eftir því hversu sterkt þetta á að vera)

Aðferð

Best er að hafa kjötið frosið svo hægt sé að skera það í þunnar sneiðar, síðan er sneiðunum raðað fallega á disk.

Blanda saman öllum hráefnunum í sósunni og smakka til. Gott er að byrja á því að setja lítið af wasabi og bæta frekar við.

Sósunni hellt yfir kjötið og látið standa í ca. 5-10 mín.

Best er að borða réttinn með góðum vinum þar sem drykkir að eigin vali eru í glösum.

Njótið.


Ég skora á vin minn og veiðifélaga til margra ára, Jón Ægi Sigmarsson, að deila með okkur einhverri góðri uppskrift, það verður enginn svikinn af því að fara í mat til hans.

Nýjar fréttir