Bókin Fegurð í Firði er vönduð myndabók með prósum eftir Gyrði Elíasson og myndum eftir Hallgrím Tómas Ragnarsson. Hún var gefin út laugardaginn 4. Júlí sl. Samhliða útgáfu bókarinnar var opnuð sýning á verkum úr bókinni í Gallerí Kambi í Holtum í Rangárþingi Ytra þar sem aðilar frá Píeta samtökunum mættu og tóku táknrænt á móti þessari fallegu gjöf frá þeim Hallgrími og Gyrði.
„Opnunin var virkilega vel heppnuð og fjölsótt, verkin vöktu athygli fyrir að vera einstaklega vegleg og vel gerð og seldust strax nokkur verk og tugir bóka. Kostnaður við útgáfu og verka er allur úr vasa höfunda, svo hver einasta króna rennur til Píeta samtakanna,“ segir Guðrún Birna le Sage markaðsstjóri Píeta.
Andvirði af sölu bókarinnar og verkanna rennur óskipt til Píeta samtakanna en þau sinna meðferðar- og forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. Þessi veglega bók verður til sölu á vefsíðu Píeta samtakanna auk þess að vera til sölu á sýningunni á laugardögum til 15. ágúst í Gallerí Kambi.





