10.3 C
Selfoss

Fimm iðkendur frá Selfossi keppa fyrir Íslands hönd í Finnlandi  

Vinsælast

Fimm keppendur sem æfa með UMF Selfoss í Frjálsum íþróttum hafa verið valin til þátttöku fyrir Íslands hönd á Norðurlandamóti U20 í Frjálsum íþróttum sem fram fer í Vasa í Finnlandi 4.-5.júlí næst komandi.

Bryndís Embla Einarsdóttir UMF Selfoss mun keppa í spjótkasti.

Helga Fjóla Erlendsdóttir Garpi mun keppa í hástökki og langstökki. 

Kristján Kári Ólafsson UMF Selfoss mun keppa í sleggjukasti.

Ívar Ylur Birkisson Dímon mun keppa í 110m grindarhlaupi.

Hjálmar Vilhelm Rúnarsson UMF Selfoss mun keppa í  hástökki, kringlukasti og kúluvarpi. 

Rúnar Hjálmarsson yfirþjálfari hjá UMF Selfoss fylgir hópnum og verður í þjálfarateymi Íslands.

UMFS

Nýjar fréttir