11.7 C
Selfoss

Hverafugl haldin í fyrsta sinn

Vinsælast

Tónlistarhátíðin Hverafugl var haldin í Hveragerði í fyrsta skipti með glæsibrag dagana 26. til 28. júní sl.

Dagskráin var fjölbreytt þar sem samtímatónlist, ólík listform og einstakt umhverfi Hveragerðis runnu saman. Tónleikar, gjörningar og innsetningar fóru fram víðs vegar um bæinn og lögðu áherslu á tengsl tónlistar við náttúru, sögu og mannlíf svæðisins.

Listrænt teymi Hverafugls skipa Halldór Smárason, Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir og Lilja María Ásmundsdóttir.

„Viðtökurnar sem hátíðin fékk, öll hlýjan og gleðin voru dýrmæt hvatning til að halda áfram og gera Hverafugl að árlegum viðburði,“ segir Hverafuglsteymið í samtali við Dagskrána.

Hátíðin hófst í Blómaborg með setningarathöfn þar sem kórinn Hverafuglar kom fram. Síðar sama kvöld fluttu CAPUT undir stjórn Guðna Franzsonar og Svanlaug Jóhannsdóttir verkið Stokkseyri eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson ásamt verkum eftir fyrrverandi nemendur hans.

Á öðrum degi bauð morguntónleikaverkefnið Alþýðan og orgelið upp á notalega stund í Hveragerðiskirkju. Einnig voru á dagskrá ljóðagjörningur við Varmá, hljóðinnsetning í Bananahúsi Garðyrkjuskólans á Reykjum, söguganga um Hveragerði og tónverkið áttir eftir Lilju Maríu Ásmundsdóttur.

Lokadagurinn hófst með tónleikum Strokkvartettsins Sigga í Sundlauginni Laugaskarði og hélt áfram með flutningi KIMI Ensemble á nýjum verkum tónsmíðanemenda Listaháskóla Íslands í Listasafni Árnesinga. Hátíðinni lauk með tónleikum kammerpopphljómsveitarinnar Melchior sem bundu glæsilegan endahnút á þrjá daga þar sem tónlist, náttúra og samfélag mynduðu eftirminnilega heild.

„Við hjá Hverafugli erum mjög þakklát öllu því fólki sem kom að því að láta hátíðina verða að veruleika; listafólki, þátttakendum, gestum og heimamönnum sem tóku okkur og Hverafugli opnum örmum og studdu hátíðina með því að mæta svo vel á viðburðina.”

Meðfylgjandi ljósmyndir tók Rakel Ýr Stefánsdóttir.

 

Nýjar fréttir