11.7 C
Selfoss

Lokun hjúkrunarheimilisins Ljósheima á Selfossi

Vinsælast

Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að loka hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) á Selfossi og er hugmyndin að heilsugæslan fái þar aðstöðu. Hefur aðstandendum vistmanna hjúkrunarheimilisins þegar verið tilkynnt þessi ákvörðun.

Hér er um 20 vistmenn að ræða og hvert á þetta fólk að fara? Það verður sjálfsagt allur gangur á því. Einhverjir munu fara á Fossheima eða Móberg á HSU á Selfossi, á meðan aðrir verða fluttir hreppaflutningum í önnur sveitarfélög og þá aðrar sýslur.  Þetta er eins og blaut tuska framan í þetta fólk og aðstandendur þeirra. Þetta fólk, sem hefur búið hérna í héraðinu og notað starfskrafta sína til að byggja það upp, vill eðlilega dvelja síðustu árin sín í sinni heimabyggð og þá sem næst sínum aðstandendum.

Íbúum héraðsins hefur fjölgað mjög hratt á sl. árum, hefur t.d. íbúum Árnessýslu fjölgað um helming á sl. tíu árum eða úr 16 þúsund íbúum í um 24 þúsund. Sveitarfélagið Árborg er stærsti þéttbýlis- og þjónustukjarni Suðurlands, þar sem um helmingur íbúa Árnessýslu býr, hefur íbúum fjölgað úr 8 þúsund í tæp 13 þúsund á sl. tíu árum.

Á sama tíma og íbúum sýslunnar hefur fjölgað um helming á sl. tíu árum þá hefur fjöldi hjúkrunarrýma í sýslunni staðið í stað. Á þessu tímabili hafa eftirfarandi hjúkrunarheimili verði starfrækt í sveitarfélaginu Árborg: Ljósheimar, Fossheimar og Sólvellir með alls 20 hjúkrunarrými hvert. Ennfremur hafa verið til staðar um 100 rými á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði. Á þessu tíu ára tímabili hefur tveimur hjúkrunarheimilum verið lokað í sýslunni og eitt nýtt byggt, sem hefur svipaðan fjölda hjúkrunarrýma og þau hjúkrunarheimili sem lokað var. En hjúkrunarheimilunum að Kumbravogi á Stokkseyri og á Blesastöðum á Skeiðum með alls 64 rýmum var lokað árið 2017. Þá var hafist handa við byggingu hjúkrunarheimilisins Móbergs við HSU á Selfossi með alls 60 hjúkrunarrýmum og það tekið í notkun fyrir fjórum árum eða árið 2022. Þannig er ekki hægt að réttlæta það, að á meðan fjöldi hjúkrunarrýma í sýslunni hefur staðið í stað á sl. tíu árum og íbúum hennar hefur fjölgað um helming, að skerða hjúkrunarrýmin um 20% og þá í stærsta þjónustukjarna Suðurlands og það sérhannað og nýlega byggt húsnæði.

Það er ekki forsvaranlegt og lítil virðing fyrir verðmætum að fórna nýlega byggðu hjúkrunarheimili, sem byggt var sem hjúkrunarheimili og tekið í notkun 2008. Hjúkrunarheimilið var sérsaklega hannað að þörfum slíkrar starfsemi eins og t.d. með sleðum í loftum fyrir lyftur, matsalur og setustofa eru í miðju rýmis og herbergi vistmanna þar í kring. Auk þess er garðskáli í vesturenda húsnæðisins. Allt hin ágætasta hönnun að mínu mati. Þessu á að fórna fyrir heilsugæsluna, sem á að fara í þetta rými. Af hverju er heilsugæslan hærra sett en hjúkrunarheimilið Ljósheimar?

Fyrir nokkrum vikum eða í byrjun maí tók Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra skóflustungu að nýrri viðbygginu við hjúkrunarheimilið Ás í Hveragerði. Með þessari viðbyggingu og öðrum breytingum á hjúkrunarheimilinu mun hjúkrunarrýmum þar fjölga um 27, úr 111 í 128. Þessi fjölgun hjúkrunarrýma í Hveragerði er fagnaðarefni, en það  afsakar ekki lokun hjúkrunarheimilisins Ljósheima á Selfossi. Hveragerði er annað sveitarfélag en sveitarfélagið Árborg og fólksfjöldi þess aðeins um þrjú þúsund manns eða um fjórðungur þess fjölda sem býr í sveitarfélaginu Árborg. Það er sveitarfélagið Árborg sem er aðal þjónustumiðstöð Suðurlands og vegna þjónustunnar þar hafa íbúar í nágrannasveitum flust til sveitarfélagsins. Það að leyfa sér að loka hjúkrunarheimilinu Ljósheimum og skerða þannig fjölda hjúkrunarrýma í sveitarfélaginu um 20% er óafsakanlegur gjörningur. Á meðan þetta virðist vera að raungerast eru margir tugir einstaklinga á biðlista.

Þá er rétt að benda á það að hin fyrirhugaða stækkun við HSU á Selfossi, sem verður um 5200 m2 að stærð, verður byggð fyrir norðan austurálmu heilsugæslunnar, þ.e.a.s. norðan við eldra húsið, og mun tengjast henni með tengibyggingu. Þannig mun væntanleg nýbygging ekkert tengjast núverandi hjúkrunarálmu, þar sem hin nýlegu hjúkrunarheimili, Fossheimar og Ljósheimar, eru til húsa. Fyrirhuguð nýbygging á m.a. að hýsa legudeild, bráðamóttöku, fæðingarþjónustu, myndgreiningu og sjúkrabílamóttöku.

Ekkert hefur heyrst frá bæjarstjórn Árborgar varðandi þessa fyrirhuguðu lokun á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á HSU á Selfossi. Ætlar hún ekki að standa vörð um réttindi eldra fólks og eigin skyldur í byggðarlaginu og nágrannabyggðum þess og stöðva þennan gjörning?

Að lokum vil ég benda þeim á, sem vilja mótmæla lokun hjúkrunarheimilisins Ljósheima að þeir geta skrifað nafn sig á eftirfarandi undirskrifalista á vefsíðunni Island.is:  Mótmælum lokun hjúkrunarheimilisins Ljósheima.

Aldís Sigfúsdóttir, verkfræðingur

Nýjar fréttir