Samtökin Til Vinstri við ESB efndu til fundar laugardaginn 13 júní sem haldinn var í Tryggvaskála á Selfossi. Framsögumenn voru þau Frosti Sigurjónsson rekstrarhagfræðingur og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og var erindum þeirra vel tekið fyrir fullum sal af fólki.
Evrópusambandið og hvernig fjárhagsleg staða ríkja sambandsins hefur farið síversnandi. Verkalýðshreyfingin mun þurfa að fara inn á línu fastgengisstefnu myntbandalagsins og þarf að undirgangast kröfu þess um verðstöðugleika sem veikir þar með samningsstöðu hreyfingarinnar.
Fundinum stýrði Ögmundur Jónasson, fyrrum ráðherra og formaður BSRB af mikilli kostgæfni og spunnust líflegar umræður þar sem margir tóku til máls.


