Laugardaginn 6. júní kl. 13-16 verður sumarbasar haldinn í Strók að Skólavöllum 1 á Selfossi. Til sölu verða handsaumuð tækifæris kort, teiknaðar myndir, litaðar myndir, málverk, blómahengi, listilega skreyttir blómapottar og steinar, prjónavörur, snyrtibuddur, leðurvörur, eyrnalokkar og margt annað skemmtilegt sem okkar dásamlegu félagar hafa verið að vinna að í vetur. Basarinn er mikilvæg fjáröflun fyrir félaga Stróks og hvetjum við fólk til að koma og styðja við okkar frábæru starfsemi.
Klúbburinn Strókur er virkni- og endurhæfingarúrræði sem er opið öllum íbúum á Suðurlandi þar sem einstaklingar eru studdir í virkni og bata eftir að hafa lent utan vinnumarkaðar sökum geðraskana og/eða eru að glíma við félagslega einangrun. Opnunartími Stróks er mánud.-fimmtud. frá kl. 8:30-15:00. Þau sem koma í þjónustu hjá Strók er boðið upp á einstaklingsmiðaðan stuðning þar sem hjálp til sjálfshjálpar er veitt og unnið út frá styrkleikum hvers og eins. Dagskrá Stróks er þannig uppbyggð að boðið er upp á dagskrárliði sem styðja við iðju-, líkamlega, andlega- og félagslega færni. Jafningjastuðningur er án efa einn af stærstu styrkleikum starfseminnar og það að rjúfa félagslega einangrun. Aðal markmið Stróks er að styðja við bataferli notenda heilbrigðiskerfisins og að fólk fái úrræði við sitt hæfi í heimabyggð. Einnig að auka tengsl fólks og efla einstaklinginn til sjálfshjálpar, stuðla að virkni og endurkomu út á vinnumarkað, fyrirbyggja innlagnir og brjóta niður fordóma.
Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta á sumarbasarinn okkar þann 6. júní næstkomandi, við tökum vel á móti gestum og gangandi. Lifandi tónlist verður í garðinum, grillaðar pylsur og bakaðar vöfflur til sölu á vægu verði.
Fjóla Einarsdóttir, forstöðumaður Stróks


