Matgæðingur vikunnar er Úlfar Þór Gunnarsson.
Grillað nautaribeye
Nauta ribeye 1 kg
60 g smjör
2 greinar af rósmarín
Nautaribeye skorið í 4 sneiðar og sett í 4 vacum eða ziplock poka ásamt 15 g af smjöri og 1/2 grein af rósmarín í hvern poka og eldað í vatnsbaði við 56°c í 90 mín. Svo grillað við háan hita, helst á kolagrilli, þar til falleg brúning fæst á hvora hlið og kryddað með sjávarsalti og grófum svörtum pipar.
Á meðan tuddinn slakar á í baðinu er kjörið að undirbúa salatið og kartöflurnar en það má alveg eins gera fyrr, og jafnvel betra.
Sumarsalat
1 haus íssalat eða lambhaga
150 g sólþurrkaðir tómatar
250 g kirsuberjatómatar
1 rauðlaukur
200 g fetaostur
Ferskt salat, sólþurrkaðir tómatar skornir í sneiðar, kirsuberjatómatar skornir í fernt, rauðlaukur skorinn í sneiðar og látið marinerast helst yfir nótt. Og svo blandað við ferskt salat og fetaost ásamt örlitlu af olíunni af ostinum.
Tapenade
130 g grænar ólífur
70 g svartar ólífur
1 knippi af steinselju án stönguls
10 gr capers
50 g xv ólífuolía
2 hvítlauksrif
15 g sítrónusafi
Öllu blandað saman í matvinnsluvél og maukað gróft saman.
3-4 Bökunarkartöflur skornar í ca. 1,5 cm þykkar sneiðar, smurðar hvítlauksolíu og bakaðar í ofni við 160° í 20-25 mín. Þetta má gera daginn áður og smyrja svo tapenade-maukinu á skífurnar og hita upp á grillinu. Og svo fæst frábær köld bernaise-sósa í öllum betri kaupfélögum landsins.
Verði ykkur að góðu og gleðilegt grillsumar.
Ég skora á Gísla Stefánsson kjötmeistara og stórsöngvara að deila með okkur einhverju góðgæti í næstu viku.

