7.3 C
Selfoss

Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju

Vinsælast

Prentmet Oddi hefur keypt þrotabú Ísafoldarprentsmiðju. Sameinað fyrirtæki er betur í stakk búið til að mæta vaxandi erlendri samkeppni og breyttu rekstrarumhverfi.

Prentmet Oddi ehf. á og rekur Dagskrána – Fréttablað Suðurlands og vefmiðilinn DFS.is.

Ísafoldarprentsmiðja var stofnuð 16. júní 1877 og var því elsta starfandi prentsmiðja landsins. Prentmet var stofnað árið 1992 en Oddi árið 1943 og því er samanlögð saga fyrirtækjanna yfir 266 ára.

Hjá Prentmet Odda starfa í dag um 70 fagmenn og býður félagið upp á mestu breidd á Íslandi í framleiðslu á almennu prentverki, bókum og umbúðum. Sömuleiðis starfar félagið með mörgum af öflugustu umbúðaframleiðendum Evrópu og veitir mörgum kröfuhörðustu fyrirtækjum landsins heildarlausnir á sviði umbúða.

Prentmet var stofnað af hjónunum Guðmundi Ragnari og Ingibjörgu Steinunni sem eiga og reka félagið enn í dag undir merkjum Prentmet Odda eftir að hafa yfirtekið Odda árið 2019. Sonur þeirra, Arnaldur Þór, stýrir innflutningshlutanum ásamt sölu- og fjármáladeild félagsins.

Nýjar fréttir