Fjöldi erlendra ferðamanna hefur aukist jafnt og þétt og Suðurland er sá landshluti sem langflestir heimsækja sem fara út fyrir höfuðborgina. Fjöldi gistinátta hefur verið hæstur á Suðurlandi með 70-80% herbergjanýtingu alla mánuði ársins og það gefur sannarlega tilefni til bjartsýni.
Gegnumstreymi
Það er staðreynd að mikill fjöldi ferðamanna flæðir gegnum Árborg á leið sinni um Suðurland sem við viljum gjarnan að staldri lengur við. Brúin yfir Ölfusá er í byggingu, hótel rísa og verslunum fjölgar. Nýi miðbærinn á Selfossi er dæmi um uppbyggingu með fallegum húsum sem bæta ásýnd bæjarins. Með tilkomu hótelsins sem nýlega var opnað við ósa Ölfusár er fyrirsjáanlegt að ferðafólki fjölgi enn meira í Árborg, sem er fagnaðarefni, og þá munu ferðamenn í auknum mæli heimsækja strandbyggðirnar.
Eyrarbakki og Stokkseyri eru vaxandi ferðamannastaðir og full þörf er á því að báðir staðir fái aðlaðandi umgjörð, t.d. með „miðbæ” í anda þorpanna, gönguleiðum og snyrtilegri aðkomu.
Lausnir í fráveitumálum eru forsenda þess að strandirnar verði aðlaðandi.
Þá mætti bæta enn frekar aðstöðu Fuglafriðlandsins á Eyrarbakka fyrir fuglaskoðunarfólk, erlent sem innlent.
Uppbygging í Árborg hefur tekið mið af þróun ferðaiðnaðarins, en betur má ef duga skal.
Umhverfið og fólkið
Ferðaþjónustan er orðin mikilvægasta atvinnugrein landsins og ávinningur samfélagsins alls er mikill. Árborg býður upp á margt sem við tökum sem sjálfsagðan hlut en ferðamenn kunna oft enn betur að meta. Nálægðin við náttúruna og hafið, svartar strendur með hraunmyndunum og norðurljós er það sem flestir ferðamenn vilja upplifa, að ógleymdum söfnum og sögustöðum. Það er líka mikilvægt að fólk finni að það sé velkomið, því upplifun gesta þarf að vera góð og í samræmi við væntingar.
Samfylkingin og óháðir í Árborg vilja ljúka uppbyggingu fráveitu- og hreinsistöðvar á Selfossi og hefja uppbyggingu hreinsistöðva á Stokkseyri og Eyrarbakka ásamt því að efla aðgengi að upplýsingum um sveitarfélagið og byggja upp trausta innviði til að styrkja ferðaþjónustu í Árborg.
Settu X við S á kjördag, 16. maí.
Margrét K. Sverrisdóttir
Íbúi á Eyrarbakka og skipar 7. sæti á lista Samfylkingar og óháðra í Árborg



