1.7 C
Selfoss

Jólabingó á Borg í Grímsnesi á morgun sunnudag

Vinsælast

Jólabingó Kvenfélags Grímsneshrepps verður haldið sunnudaginn 26. nóvember kl. 14:00 í Félagsheimilinu Borg. Að vanda verða góðir vinningar. Aðgangseyrir er 1.000 kr. og innifalið er heitt súkkulaði með rjóma, jólasmákökur og eitt bingóspjald. Aukaspjald er á 500 kr.

Allur ágóði rennur í Sjóðinn góða er samstarfsverkefni ýmissa félagasamtaka í Árnessýslu sem hefur þann tilgang að veita aðstoð fyrir jólahátíðina til handa þeim sem ekki eiga fyrir nauðþurftum. Kvenfélagskonur vonast til að sjá sem flesta hressa og káta með klink og seðla til styrktar góðu málefni.

Nýjar fréttir