Tónlistarkonan Sara Mjöll Magnúsdóttir hlaut í síðasta mánuði útnefnd bjartasta vonin í íslenskri tónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum.
Sara er Hammond-orgelleikari, píanóleikari og tónskáld frá Hellu. Hún hefur starfað við tónlist frá tvítugsaldri og byggt upp feril bæði á Íslandi og erlendis, en hún býr nú í New York og hefur verið búsett í Bandaríkjunum síðustu 6 árin. Sara spilar aðallega djass en sækir einnig innblástur í popp, hiphop og R&B.

Upphaf ferils
Sara Mjöll hefur frá ungum aldri haft áhuga á tónlist. „Ég var mjög ung, ég man ekki eftir mér öðruvísi. Ég hlustaði á alls konar tónlist heima og fannst ótrúlega gaman að sjá lifandi tónlist á tónleikum, sérstaklega djass og blús,” segir hún.
Ferill Söru í tónlist tók á sig mynd á menntaskólaárunum þegar hún stundaði jazzpíanónám við Tónlistarskóla FÍH. „Þá byrjaði ég smám saman að spila gigg hér og þar um Reykjavík,“ segir hún. Fyrsta borgaða giggið hennar Söru var á kaffihúsinu 10 dropum, sem hún lýsir sem besta kaffihúsi borgarinnar á þeim tíma. Eftir það var ekki aftur snúið og hefur hún síðan þá komið fram á fjölmörgum tónleikum og hátíðum, þar á meðal Múlanum í Hörpu á síðasta ári og Jazzhátíð Reykjavíkur.

Lagið Heima
Sara var tilnefnd fyrir björtustu vonina í íslenskri tónlist og einnig fékk lagið Heima eftir Söru tilnefningu sem lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Lagið Heima er af plötunni A place to bloom sem Sara gaf út í fyrra.

„Lagið Heima er um að líða eins og maður eigi heima á mörgum stöðum, eftir að hafa átt heima erlendis lengi. Að vera eiginlega alltaf með heimþrá hvar sem maður er. Það er ljúfsár tilfinning en það eru forréttindi að upplifa sig heima á mörgum stöðum.“
Framundan eru spennandi verkefni. Hún kemur til Íslands í lok apríl þar sem hún mun koma fram á Hammond-hátíðinni ásamt Elínu Hall. „Þetta er í fyrsta sinn sem við spilum saman og ég er mjög spennt,“ segir Sara.
Sara stefnir einnig á að gefa út stórsveitarplötu með verkum eftir sig sjálfa. Markmið hennar eru einnig að fara á túr í Evrópu og Japan og gefa út aðra kvartettplötu.
Ef þú gætir unnið með hvaða listamanni sem er, hver væri það?
„Ég held ég og Laufey gætum gert flotta hluti saman!“
Að lokum vill Sara hvetja fólk til að elta drauma sína.
„Ég vil bara hvetja fólk til að elta það sem veitir þeim gleði og síður það sem það heldur að það „eigi“ að gera,” segir hún. „Ég er alltaf að minna mig á það sjálf,“ bætir hún við að lokum.



