-6.1 C
Selfoss

Hlutu alls fimm verðlaun í þremur aldursflokkum

Vinsælast

Verðlaunaafhending í ensku smásagnakeppninni 2025 sem félag enskukennara á Íslandi (FEKÍ) stendur fyrir fór fram 9. febrúar s.l. við hátíðlega athöfn í Veröld – húsi Vigdísar í Reykjavík.

Það var sendiherra Bretlands á Íslandi Dr. Bryony Mathew sem afhenti nemendum verðlaunin.

Öllum grunn- og framhaldsskólum landsins stendur til boða að taka þátt í þessari keppni þar sem nemendur skrifa smásögur á ensku út frá ákveðnu orði/þemu, sem í ár var orðið EPIPHANY.

Verðlaunin afhenti sendiherra Bretlands á Íslandi Dr. Bryony Mathew.

Nemendur Grunnskólans í Hveragerði hlutu alls fimm verðlaun í þremur aldursflokkum:

Í flokknum 5. bekkur og yngri unnu eftirtaldir nemendur til verðlauna:
1. verðlaun hlaut Ísabella Rán Andradóttir fyrir söguna Basketball Hero.
2. verðlaun hlaut Hugrún Gunnarsdóttir fyrir söguna Emma and Her Story.
3. verðlaun hlaut Hugi Þór Haraldsson fyrir söguna Neisti and I.

Í flokknum 6. – 7. bekkur hlaut Baltasar Björn Sindrason 1. verðlaun fyrir söguna The Last Upgrade.

Í flokknum 8. – 10. bekkur hlaut Hera Fönn Lárusdóttir 3. verðlaun fyrir söguna A Life In Ink.

Nýjar fréttir