-6.1 C
Selfoss

Gamlar bridgehefðir endurvaknar

Vinsælast

Nemendur Menntaskólans að Laugarvatni fengu óvenjulega og skemmtilega heimsókn 3. febrúar sl. Eldri nemendur ML mættu og stilltu upp bridgekeppni í holinu á annarri hæð skólans. Næsta vor eiga bridgespilarar skólans 50 ára stúdentsafmæli.

Bridgespilararnir kölluðu sig SS-sveitina enda hafa þeir allir S sem fyrsta staf í nöfnum sínum, einn reyndar í seinna nafni. Sveitina skipa þeir Guðmundur Sveinn Hermannsson, Skafti Jónsson, Skúli Einarsson og Sævar Þorbjörnsson. Skafti, sem býr í Danmörku, var fjarri góðu gamni en þá var hnippt í varamann, Sigfinn Snorrason, sem var tveimur árum á undan þeim í ML og er líklegt að hann hafi leitt þá inn í töfraheim brige-íþróttarinnar.

Á höfuðborgarsvæðinu spilar fjöldi ML-inga bridge og nokkrir þeirra sem urðu stúdentar 1965-1970 hafa spilað árum saman undir merkjum ML-sveitarinnar. Þeir höfðu frumkvæðið að því að heiðra SS-sveitina á þennan hátt og undirliggjandi var áhugi þeirra á að endurvekja bridgeiðkun í ML sem hefur hrakað svo að enginn nemandi fannst sem kunni eitthvað fyrir sér í þessari göfugu íþrótt innan ÍSÍ.

Myndirnar tók Gylfi Þorkelsson.

Frá stofnun ML árið 1953 og fram að aldamótum var bridge í hávegum haft en nú er hún Snorrabúð stekkur. Þeir fjórir ML-sveitarmenn sem öttu kappi við SS-sveitina eru Baldur Kristjánsson, Birkir Þorkelsson, Pétur Skarphéðinsson og Sigmundur Stefánsson. Það yrði til að æra óstöðugan að telja upp alla þá ML-inga sem spila reglulega „fyrir sunnan“ með góðum árangri en til að taka dæmi þá er Ómar Olgeirsson núverandi Íslandsmeistari í tvímenning og hann varð í öðru sæti á Reykjavík Bridge festival sem er ný lokið en þar tóku þátt rúmlega 140 pör.

Myndirnar tók Gylfi Þorkelsson.

Ekki má gleyma því að framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands er Matthías sem hefur lyft Grettistaki við útbreiðslu íþróttarinnar. Fjöldi skóla hefur tekið upp bridgeáfanga í námskrá á allra síðustu árum. SS-sveitarmenn hafa allir leikið með landsliðum allt frá unglinga-, til aðal- og seniora-landsliðs og ML-sveitin státar líka af Íslandsmeistara í einmenningi, Baldri Kristjánssyni.

Það er von ML-sveitarmanna að þeir hafi kveikt neista hjá nemendum ML sem gæti orðið að stóru báli án þess að trufla glæsilega söngmenningu skólans. Svo verður að geta úrslita keppninnar en SS-sveitin sigraði ML-sveitina með öruggum sigri.

Myndirnar tók Gylfi Þorkelsson.

Nýjar fréttir