0.6 C
Selfoss

Frjálsíþróttadeild Selfoss tóku þátt í Stórmóti ÍR

Vinsælast

Nokkrir keppendur frá Frjálsíþróttadeild Selfoss tóku þátt í Stórmóti ÍR sem haldið var í frjálsiþróttahöllinni í Reykjavík 8.-9.febrúar. Í flokki 8 ára og 9-10 ára var boðið upp á keppni í fjölþraut þar sem aðaláherslan er á að hafa gaman og allir fá þátttökuverðlaun.

Í 11 ára flokki vann Helga Þórbjörg Birgisdóttir silfurverðlaun í fimmtarþrautinni. Hún náði bestum árangri allra keppenda í kúluvarpi með 7.23m löngu kasti og í langstökki stökk hún næstlengst allra er hún stökk 3.51m.

Helga Þórbjörg Birgisdótttir fékk silfurverðlaun 11 ára í fimmtarþraut. Mynd: Aðsend.

Í 14 ára flokki sigraði Andri Fannar Smárason í stangarstökki er hann flaug yfir 2,28m og í þrístökki vann hann silfurverðlaun  er  hann bætti sinn besta árangur með 9,54m löngu stökki.

Ásta Kristín Ólafsdóttir sigraði kúluvarp er hún bætti sinn besta árangur og kastaði 10.43m í 15 ára flokki.

Arndís Eva Vigfúsdóttir fékk silfurverðlaun kúluvarp 16-17 ára. Mynd: Aðsend.

Anna Metta Óskarsdóttir sigraði þrístökk með 11.21m og Arndís Eva Vigfúsdóttir vann tvenn silfurverðlaun, báðar í 16-17 ára flokki. Arndís bætti sig í hástökki er hún stökk yfir 1.58m og kastaði síðan kúlunni 11.48m.

Kristján Kári Ólafsson sigraði gullverðlaun kúlvarp 18-19 ára. Mynd: Aðsend.

Kristján Kári Ólafsson sigraði kúluvarp er hann bætti sinn besta árangur og kastaði 13,23m í 18-19 ára flokki.

Í karlaflokki stökk Daníel Smári Björnsson yfir 1.55m í hástökki og  lenti í 1.-2.sæti.

Nýjar fréttir